MacBook Neo

MacBook Neo er ný kynslóð af Makka sem getur flest og hentar enn fleirum. Knúin A18 Pro-flögu á hún létt með daglega notkun: netið, skjöl, streymi og fjarfundi. Liquid Retina 13″ skjárinn gerir allt ljóslifandi, rafhlaðan endist í allt að 16 klukkustundir og hún fæst í fjórum líflegum litum: silfur, sítrus, indígóbláum og ljósbleikum.

Verð frá 139.900 kr.

Lyklaborð

Veldu lyklaborðsuppsetningu.

Samtals:
Vörunúmer: MBNeo Flokkar: , Merkimiði:
Biðpöntun

Nýtt

MacBook Neo

Ást við fyrsta Mac.

Verð frá 139.900 kr.

Helstu atriðin

Silver, Blush, Citrus og Indigo.
Fjórir litir. Ein sterkbyggð hönnun.
Silver, Blush, Citrus og Indigo. Fjórir litir. Ein sterkbyggð hönnun.
Snögg í öllu daglegu amstri.
Allt að 16 klst. rafhlaða.
Snögg í öllu daglegu amstri. Allt að 16 klst. rafhlaða.
13 tommu Liquid Retina skjár.
Milljarður lita. Opnaðu og segðu vá.
13 tommu Liquid Retina skjár. Milljarður lita. Opnaðu og segðu vá.
Ókeypis uppfærslur og innbyggð vírusvörn.
Fullkomin hugarró.
Ókeypis uppfærslur og innbyggð vírusvörn. Fullkomin hugarró.

Afköst

Krafturinn sem dagurinn þarf

A18 Pro-flagan keyrir öppin sem þú notar mest, rennur í gegnum dagleg verk og ræður líka við skapandi vinnu og leiki. Rafhlaðan endist í allt að 16 klukkustundir, frá morgni til kvölds.

Krafturinn sem dagurinn þarf

Námið. Glósur, verkefni og kynningar, allt á einum stað.

Vinnan. Tölvupóstur, fjarfundir og töflureiknar renna vel.

Frítíminn. Myndir, þættir og leikir á björtum skjá.

Skjár, myndavél og hljóð

Veisla fyrir skynfærin

Myndir og myndbönd lifna við með skörpum smáatriðum og ríkum litum. Textinn er skýr og auðlesinn og tveir hátalarar á hliðunum fylla herbergið af hljóði.

Veisla fyrir skynfærin

Milljarður lita. 13 tommu Liquid Retina skjár með 500 nita birtu.

1080p FaceTime HD. Skýr mynd í öllum fjarfundum.

Spatial Audio. Tveir hátalarar með Dolby Atmos og tveir hljóðnemar.

Mac og iPhone

Betri saman

Byrjaðu tölvupóst á iPhone og kláraðu hann í Makkanum, afritaðu á milli tækja og notaðu iPhone sem netpunkt. Hringdu, svaraðu símtölum og skilaboðum beint úr Makkanum.

Handoff. Haltu áfram þar sem þú hættir, á hvaða tæki sem er.

AirDrop. Sendu stórar skrár á milli tækja á augabragði.

iPhone Mirroring. Notaðu iPhone beint af skjá Makkans.

Öryggi

Engar málamiðlanir

Gögnin eru dulkóðuð sjálfkrafa, vírusvörnin er innbyggð og öryggisuppfærslur eru ókeypis. Ef Makkinn týnist finnurðu hann með Find My og getur læst honum eða eytt gögnum af honum úr fjarlægð.

Engar málamiðlanir

Tæknilýsing

Skjár
13″ Liquid Retina, 2408 × 1506
500 nit, milljarður lita
Flaga
A18 Pro
6 kjarna örgjörvi, 5 kjarna skjástýring, 16 kjarna Neural Engine
Vinnsluminni
8 GB
Rafhlaða
Allt að 16 klst. myndstreymi, 11 klst. á netinu
20W USB-C hleðslutæki
Myndavél
1080p FaceTime HD
Tengi
Eitt USB-C (USB 3, 10 Gb/s, skjár allt að 4K60)
Eitt USB-C (USB 2)
Heyrnartólatengi
Þráðlaust
Wi-Fi 6E, Bluetooth 6
Hljóð
Tveir hátalarar, Spatial Audio, Dolby Atmos
Öryggi
Touch ID í dýrari útgáfunni
Þyngd og þykkt
1,23 kg · 1,27 cm
Geymsla
256 GB eða 512 GB
Litir
Silver, Blush, Citrus og Indigo

Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.

Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.

Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.

Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.

Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.