Orkuflokkur (A til G): A Vöruupplýsingablað
iPhone 17e er einfaldasta leiðin inn í heim iPhone. A19-flagan sér um allt sem þú gerir, 48 MP Fusion-myndavélin tekur skarpar myndir og 4K myndbönd og 6,1″ Super Retina XDR-skjárinn er bjartur og skýr. Hann hleðst bæði með USB-C og MagSafe, er með Face ID og styður 5G. Grunngeymslan er 256 GB, svo það er nóg pláss fyrir myndirnar, öppin og allt hitt.
Verð frá 129.990 kr.
iPhone 17e
A19, 48 MP myndavél, MagSafe og 256 GB í grunninn.





Ending
Sterkur álrammi og Ceramic Shield 2 að framan með þrefalt betri rispuvörn en á iPhone 16e. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af hverri rispu og hverju falli.

Ceramic Shield 2. Sterkara en nokkurt annað snjallsímagler.
Face ID. Opnaðu símann, skráðu þig inn og borgaðu með einu augnaráði.
Action button. Flýtileið að því sem þú notar mest.
Hönnun og litir
Sígildur svartur eða hvítur, eða nýr og ljúfur Soft Pink. Skjárinn er 6,1 tommu Super Retina XDR með nýrri sjö laga húð sem dregur úr glampa, líka í björtu sólskini.

MagSafe. Þráðlaus hleðsla allt að 15W og seglar fyrir aukahluti.
USB-C. Til að hlaða og tengjast öðrum tækjum.
256 GB. Tvöfalt meira pláss en í iPhone 16e.
Afköst og rafhlaða
A19 er sama kynslóð og í iPhone 17 og gerir allt hratt og mjúklega, núna og næstu árin. C1X-mótaldið er allt að tvöfalt hraðara en í iPhone 16e og rafhlaðan dugar í allt að 26 klukkustunda myndspilun.

A19. 6 kjarna örgjörvi og 4 kjarna skjástýring.
Allt að 26 klst. Myndspilun á einni hleðslu.
50% á 30 mínútum. Með 20W hleðslutæki eða öflugra.
Myndavél
48 MP Fusion myndavélin tekur myndir í mikilli upplausn og 4K myndbönd, og 2x aðdráttur í optískum gæðum er innbyggður. Þú getur líka breytt venjulegri mynd í portrettmynd eftir á.
Portrettmyndir. Bættu við óskýrum bakgrunni og færðu fókusinn eftir á.
Night mode. Skarpar og bjartar myndir, líka í myrkri.
4K 60 fps. Dolby Vision og síun á vindhljóði.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.
Nýjar vörur, tilboð og fréttir, beint í pósthólfið.