Orkuflokkur (A til G): G Vöruupplýsingablað
iPad er með A16-flögu sem skilar snörpum hraða í allt frá vafri og myndvinnslu til leikja, og 11″ Liquid Retina skjárinn gerir allt skýrt og bjart. Rafhlaðan endist allan daginn.
Center Stage myndavélin að framan heldur þér í mynd á fjarfundum, USB-C tengið hleður og tengir aukabúnað, og hann virkar með Apple Pencil (USB-C) og Magic Keyboard Folio. Fæst í fjórum litum með 128 GB, 256 GB eða 512 GB geymslu, með eða án 5G.
Verð frá 89.990 kr.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.