Orkuflokkur (A til G): E Vöruupplýsingablað

iPad mini

iPad mini er með 8,3″ Liquid Retina skjá og A17 Pro-flögu, svo hann ræður auðveldlega við leiki, myndvinnslu og allt þar á milli. Fullkominn til að lesa, teikna og taka með sér hvert sem er.

Hann virkar með Apple Pencil Pro og Apple Pencil (USB-C), er með USB-C tengi og 12 MP myndavél að framan með Center Stage. Fæst með 128 GB eða 256 GB geymslu, með eða án 5G.

Verð frá 119.990 kr.

Vörunúmer: iPadMiniA17Pro Flokkur:
Biðpöntun

iPad mini

iPad mini

Allt sem þú elskar við iPad, í lófanum.

Verð frá 119.990 kr.
iPad mini

Helstu atriðin

Aðeins 293 grömm. Passar í töskuna og liggur vel í hendi.
Aðeins 293 grömm. Passar í töskuna og liggur vel í hendi.
12 MP myndavél með Smart HDR 4. Betri myndir, líka í lítilli birtu.
12 MP myndavél með Smart HDR 4. Betri myndir, líka í lítilli birtu.
Skannaðu skjöl á augabragði. True Tone flassið losar þig við skugga og glampa.
Skannaðu skjöl á augabragði. True Tone flassið losar þig við skugga og glampa.
5G í farsímaútgáfunni. Netið fylgir þér hvert sem þú ferð.
5G í farsímaútgáfunni. Netið fylgir þér hvert sem þú ferð.

A17 Pro

Lítill en öflugur

A17 Pro-flagan er allt að 30% hraðari en í fyrri kynslóð og ræður við krefjandi leiki og öpp. Rafhlaðan endist allan daginn.

6 kjarna örgjörvi. Tveir afkastakjarnar og fjórir sparneytnir.

5 kjarna skjástýring. Fyrir leiki og grafík.

Allt að 10 klst. Á netinu eða í myndspilun.

Apple Pencil Pro

Teiknaðu hvar sem er

iPad mini styður Apple Pencil Pro. Kreistu pennann til að opna verkfæri, snúðu honum til að stýra penslinum og tvíbankaðu til að skipta á milli penna og strokleðurs.

Kreistu. Verkfæri, línur og litir birtast strax.

Snúðu. Nákvæm stjórn á pennum og penslum.

Hover. Sjáðu hvar oddurinn lendir áður en þú snertir skjáinn.

Skjár og tengingar

Skarpur skjár, hratt net

8,3 tommu Liquid Retina skjárinn er með True Tone, P3 litum og lítilli speglun, svo textinn er skýr og litirnir lifandi. Wi-Fi 6E er allt að tvöfalt hraðara en í fyrri kynslóð.

326 pt/tommu. Skarpur texti og myndir.

Wi-Fi 6E. Allt að tvöfalt hraðara en áður.

USB-C. Allt að 10 Gb/s.

Tæknilýsing

Skjár
8,3″ Liquid Retina, 2266 × 1488, 326 pt/tommu
500 nit, P3, True Tone, glampavörn
Flaga
A17 Pro
6 kjarna örgjörvi, 5 kjarna skjástýring, 16 kjarna Neural Engine
Myndavélar
12 MP að aftan, 4K60
12 MP Center Stage að framan
Rafhlaða
Allt að 10 klst. á netinu eða í myndspilun
Tengi
USB-C (USB 3, allt að 10 Gb/s)
Þráðlaust
Wi-Fi 6E, Bluetooth 5.3
5G í farsímaútgáfu (eSIM)
Öryggi
Touch ID í efri hnappi
Aukahlutir
Apple Pencil Pro, Apple Pencil (USB-C)
Þyngd og þykkt
293 g · 6,3 mm
Geymsla
128 GB, 256 GB eða 512 GB
Litir
Blue, Purple, Starlight og Space Gray

Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.

Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.

Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.

Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.

Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.