iPhone Duo

iPhone Duo er fyrsti samanbrjótanlegi iPhone frá Apple. Opinn býður hann 7,6 tommu Super Retina XDR skjá, þann stærsta á iPhone til þessa, með sérhannaðri nanóáferð sem dregur úr glampa. Lokaður er hann með 5,4 tommu ytri skjá með ProMotion og skjá sem alltaf er kveikt á. Títanrammi, tvöfalt rafhlöðukerfi, A20 Pro-flaga, 48 MP Dual Fusion myndavélakerfi, Touch ID og stuðningur við Apple Pencil. Fáanlegur í Star White og Night Sky. Forpantanir hefjast kl. 12:00 16. október og fyrsta afhending er áætluð 23. október en þegar nýr iPhone kemur út má alltaf búast við töfum á afhendingu.

Verð frá 359.990 kr.

Vörunúmer: iPhoneDuo Flokkur:

Nýtt

iPhone Duo

Fyrsti samanbrjótanlegi iPhone.

Verð frá 359.990 kr.

Helstu atriðin

Stærsti skjár sem iPhone hefur fengið. Þunnur og samanbrjótanlegur.
Stærsti skjár sem iPhone hefur fengið. Þunnur og samanbrjótanlegur.
iOS lagað að nýjum stellingum. Fleiri leiðir til að nota iPhone.
iOS lagað að nýjum stellingum. Fleiri leiðir til að nota iPhone.
Rammi og lamahlíf úr títani. Falleg og sterkbyggð.
Rammi og lamahlíf úr títani. Falleg og sterkbyggð.
Tvær 48 MP Fusion myndavélar að aftan. Nýjar leiðir til að mynda.
Tvær 48 MP Fusion myndavélar að aftan. Nýjar leiðir til að mynda.
Tvöfalt rafhlöðukerfi sem endist allan daginn.
Tvöfalt rafhlöðukerfi sem endist allan daginn.

Hönnun

Nýr iPhone sem opnast

iPhone Duo er fyrsti samanbrjótanlegi iPhone. Opinn er hann þynnsti iPhone frá upphafi með stærsta skjá sem iPhone hefur fengið, 50% stærri en skjárinn á iPhone 18 Pro Max. Lokaður fer hann beint í vasann.

5,2 mm opinn. Þynnsti iPhone sem hefur verið smíðaður.

Títan. Rammi og lamahlíf úr Grade 5 títani, IP68 vörn gegn vatni og ryki.

Tveir litir. Star White og Night Sky.

Skjár

Hugsaðu stórt

7,6 tommu Super Retina XDR skjárinn er sléttur og samfelldur, og FaceTime myndavélin undir skjánum sést ekki fyrr en þú þarft á henni að halda. Opnaðu tvö öpp hlið við hlið með Split View eða njóttu þátta og leikja á stórum skjá.

Hugsaðu stórt

Nanóáferð. Dregur úr glampa á innri skjánum.

3000 nit. Hámarksbirta sem dugar líka úti í sól.

ProMotion. Allt að 120 Hz á báðum skjám.

Fjölhæfni

Hvaða stelling sem er

Vinndu á ytri skjánum eða þeim stóra að innan. Hallaðu iPhone Duo til að fá besta sjónarhornið á bíómyndina eða stilltu honum upp og taktu FaceTime símtal án þess að halda á honum.

Split View. Dragðu mynd úr Photos beint yfir í Mail.

StandBy. Klukka, myndarammi eða græjur, líka án hleðslu.

Handfrjálst. Stendur sjálfur í FaceTime símtölum.

Myndavél

Nýjar leiðir til að mynda

Tvær 48 MP Fusion myndavélar að aftan og 4K myndbönd í allt að 120 römmum á sekúndu. Ytri skjárinn opnar svo alveg nýja möguleika, og með Duo FaceTime geta vinir í kring tekið þátt í símtalinu.

Duo Preview. Sá sem þú myndar sér myndina á ytri skjánum.

Smart Take. Smellir af þegar allir eru tilbúnir.

Kid Cue. Fjörugar hreyfimyndir fá börnin til að horfa í linsuna.

Tæknilýsing

Innri skjár
7,6″ samanbrjótanlegur Super Retina XDR
Nanóáferð, ProMotion allt að 120 Hz, allt að 3000 nit
Ytri skjár
5,4″ Super Retina XDR með ProMotion og Always-On
Flaga
A20 Pro
6 kjarna örgjörvi, 7 kjarna skjástýring, gufukæling
Myndavélar að aftan
48 MP Fusion aðalmyndavél
48 MP Fusion ofurvíðlinsa
2× aðdráttur í optískum gæðum
4K í allt að 120 römmum á sekúndu
Myndavél að framan
12 MP Center Stage
FaceTime myndavél undir innri skjá
Rafhlaða
Tvöfalt rafhlöðukerfi
Allt að 31 klst. myndspilun á innri skjá, 44 klst. á ytri skjá
Um 50% hleðsla á 20 mínútum með snúru
Hleðsla
USB-C, MagSafe og Qi2 allt að 25W
Efni og vörn
Rammi og lamahlíf úr títani
Ceramic Shield 2 að framan, Ceramic Shield að aftan
IP68
Öryggi
Touch ID í hliðarhnappi
SIM
Eingöngu eSIM (tvö virk eSIM)
Þyngd og þykkt
254 g · 5,2 mm opinn, 11,3 mm lokaður
Geymsla
256 GB, 512 GB, 1 TB eða 2 TB
Litir
Star White og Night Sky

Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.

Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.

Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.

Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.

Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.