Persónuvernd

Síðast uppfært þann 04. jún 2018.

Allar persónulegar upplýsingar um kaupanda vegna notkunar á vefsvæði Makkland ehf. (macland.is) verður farið með í samræmi við lög og reglur um meðferð persónulegra upplýsinga eins og þær eru á hverjum tíma.

Macland.is hefur hins vegar leyfi til að nýta eftirfarandi upplýsingar til markaðsrannsókna sem væntanlega leiða til betri þjónustu við kaupendur. Jafnframt áskilur seljandi sér rétt til að nýta þessar upplýsingar með samstarfsaðilum sínum í þeim tilgangi að bæta og til að bjóða fjölbreyttari þjónustu. Upplýsingar verða aftur á móti aldrei seldar eða gefnar þriðja aðila.

Kaupandi hefur rétt til að fá að sjá þær upplýsingar sem macland.is hefur um hann. Hafi kaupandi eitthvað út á þær að setja hefur hann rétt til að fá þær leiðréttar eða afmáðar án kostnaðar.

Tölvupóstur og viðhengi hans sem starfsfólk Makkland ehf. sendir gætu innihaldið trúnaðarupplýsingar eingöngu ætlaðar þeim sem hann er stílaður á. Sá sem fyrir tilviljun, mistök eða án heimildar tekur við tölvupóstinum, skal fara eftir 2. mgr. 44. gr. laga nr.107/1999 um fjarskipti og gæta fyllsta trúnaðar og tilkynna sendanda samstundis að upplýsingarnar hafi ranglega borist sér.

Við notkun á þessari vefsíðu verða til upplýsingar um heimsóknina. Macland notar þessar upplýsingar til að betrumbæta vefsíðuna og upplifun notenda hennar. Við leggjum höfuðáherslu á varðveislu þessara gagna og afhendum þau ekki þriðja aðila nema um lagalega skyldu sé að ræða.

Vafrakökum er safnað í þeim tilgangi að telja heimsóknir sem og greina notendaferðalag (e. Users journey) um vefsíðuna. Þessar upplýsingar eru greindar með því markmiði að bæta upplifun notenda á vefsíðunni og auðvelda aðgengi notenda að upplýsingum.

Ef stofnaður er aðgangur á síðunni, safnast vafrakökur sem eru nauðsynlegar fyrir virkni vefsins við innskráningu notenda. Nafn, netfang og símanúmer eru geymd þegar notandi skrifa athugasemd, eða sendir inn beiðni í gegnum síðuna. Þessar upplýsingar eru geymdar til að halda utan um samskiptasögu og auðvelda úrlausn fyrirspurna.

Macland notar Google analytics til að safna gögnum, þar koma fram upplýsingar um hverja heimsókn, hversu lengi hún varði, hvert notandi fór innan vefsíðunnar og hvar hann fór af léninu.