iMac sameinar kraft og fegurð í einni nettri heild. M4-örgjörvinn gerir hana allt að 1,7x hraðari en iMac með M1 og leikur sér að myndvinnslu og daglegum verkefnum. 4,5K Retina skjárinn gerir liti og smáatriði ljóslifandi, og 12MP myndavél með Center Stage heldur þér í mynd á fjarfundum. Fæst í sjö litum og fylgir Magic Keyboard og Magic Mouse.
Verð frá 289.990 kr.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.