Apple TV 4K (4. kynslóð)

Forpöntun. Fyrstu eintök eru væntanleg eftir 13. nóvember.

Nýja Apple TV 4K er öflugasta heimabíóupplifun Apple til þessa. A19-flagan er allt að 50% hraðari en fyrri kynslóð og skilar 4K mynd með Dolby Vision og HDR10+ ásamt Dolby Atmos hljóði. Ný AV1-afkóðun gefur gott streymi með minni bandvídd.

Þrír innbyggðir hljóðnemar gera þér kleift að tala við Siri án fjarstýringar. Nýja Siri Remote (4. kynslóð) fylgir með og hana má finna með Find My og láta hana gefa frá sér hljóð. Paraðu fjóra HomePod mini 2 eða HomePod (2. kynslóð) við Apple TV 4K fyrir umlykjandi hljóm, og Apple TV stýrir snjallheimilinu sem heimilismiðstöð með Wi-Fi og Thread.

Ein útgáfa með 128GB geymslu, Wi-Fi 7, Gigabit Ethernet-tengi, HDMI 2.1 og Bluetooth 6.

Í kassanum: Apple TV 4K (4. kynslóð), Siri Remote (4. kynslóð) og rafmagnssnúra. HDMI-snúra fylgir ekki.

59.990 kr.

Biðpöntun

Vörunúmer: MLFF4KK/A Flokkur:
Biðpöntun

Nýtt · Forpöntun

Apple TV 4K

Bíóupplifun heim í stofu.

Verð frá 59.990 kr.
Apple TV 4K (4. kynslóð)

Ljóslifandi mynd.
Magnaður hljómur.

Severance í Apple TV-appinu með áskrift.

Helstu atriðin.

4K með Dolby Vision og Dolby Atmos.
Bíóið er komið heim.
Talaðu bara við sjónvarpið.
Siri heyrir í þér yfir hljóðinu.
Leikir á stóra skjánum.
A19 ræður við þá alla.
Fjórir HomePod mini 2
fyrir alvöru hljóm.
Fjórir HomePod mini 2
fyrir alvöru hljóm.
Stýrðu heimilinu
beint af sjónvarpinu.
Stýrðu heimilinu
beint af sjónvarpinu.

Afköst

A19. Hraðara í öllu.

Nýja A19-flagan er allt að 50% hraðari en fyrri kynslóð og með tvöfalt hraðara skjákort. Allt opnast strax, valmyndir renna mjúklega og leikir líta betur út.

A19. Hraðara í öllu.

AV1-afkóðun. Betri gæði í streymi með minni bandvídd.

Wi-Fi 7 og Gigabit Ethernet. Hröð og stöðug tenging, þráðlaust eða með snúru.

128GB. Ein útgáfa með nægu plássi fyrir öpp og leiki.

Siri Remote

Fjarstýring sem týnist ekki.

Nýja Siri Remote (4. kynslóð) fylgir með. Ef hún hverfur undir sófapúðann finnurðu hana með Find My í iPhone eða lætur hana gefa frá sér hljóð.

Fjarstýring sem týnist ekki.

Tæknilýsing

Flaga
A19
Geymsla
128GB
Mynd
4K, Dolby Vision, HDR10+, HDR10 og HLG
Hljóð
Dolby Atmos
Tengi
HDMI 2.1, Gigabit Ethernet
Þráðlaust
Wi-Fi 7, Bluetooth 6, Thread
Siri
Þrír innbyggðir hljóðnemar
Fjarstýring
Siri Remote (4. kynslóð) með Find My, hleðst með USB-C
Í kassanum
Apple TV 4K, Siri Remote og rafmagnssnúra. HDMI-snúra fylgir ekki.

Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.

Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.

Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.

Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.

Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.