Apple Watch Series 12 kemur með glænýju heilsumælingakerfi sem veitir nákvæmustu púlsmælingu sem völ er á í tæki sem borið er á líkamanum. Það mælir púlsinn á fimm sekúndna fresti allan daginn og gefur þér persónulegt álagsmat á hverjum morgni, byggt á hreyfingu, lífsmörkum og svefni. S11-flagan, Siri AI og Live Rewind gera úrið snjallara en nokkru sinni og Ceramic Shield 2 er 60 prósent sterkara en glerið á fyrri álgerðum. Fáanlegt í 42 mm og 46 mm, í áli (Dark Bronze, Black, Light Gold, Space Gray) og títan (Radiant Gold, Natural). Títangerðirnar eru eingöngu með GPS+Cellular.
Verð frá 74.990 kr.







Health Sensing System
Nýir sjón- og rafnemar og stærri, sparneytnari græn ljós vinna með S11-flögunni og gefa nákvæmustu hjartsláttarmælingu sem finnst í snjallúri. Series 12 mælir púlsinn í bakgrunni á fimm sekúndna fresti og HRV á allt að fimm mínútna fresti.
60x oftar. Hjartsláttarmælingar í bakgrunni miðað við Series 11.
24x oftar. HRV-mælingar miðað við Series 11.
Heart Rate appið. Uppfært app og nýjar upplýsingar beint á úrskífunni.
Readiness og svefn
Á hverjum morgni færðu eina einfalda einkunn sem byggir á hreyfingu, lífsmörkum og svefni síðustu daga, og hún aðlagast yfir daginn. Þannig veistu hvenær þú átt að taka á því og hvenær þú átt að hvíla þig.

Svefnskor. Einkunn fyrir svefninn á hverri nóttu og hvernig hún er reiknuð.
Vitals. HRV er nú hluti af lífsmörkum, bæði yfir nóttina og daginn.
Fyrr á ferðinni. Sjáðu breytingar áður en þær birtast í næturmælingum.
Heilsuinnsýn
Series 12 getur látið þig vita ef það greinir mynstur sem benda til háþrýstings, tekið hjartalínurit með ECG-appinu og mælt súrefnismettun. Cycle Tracking fylgir þér í gegnum öll stig tíðahringsins.

Háþrýstingur. Viðvaranir byggðar á greiningu yfir 30 daga tímabil.
ECG. Athugaðu merki um gáttatif beint af úlnliðnum.
Kæfisvefn. Varar þig við merkjum um kæfisvefn.
Öryggi og daglegt líf
Ef þú dettur illa eða lendir í alvarlegum árekstri getur Series 12 hringt sjálfkrafa í neyðarþjónustu og deilt staðsetningu þinni. Með Apple Pay borgarðu svo einfaldlega með því að halda úrinu að posanum.
Fall Detection. Hjálp þegar þú þarft mest á henni að halda.
Ceramic Shield 2. Á álgerðunum, 60% sterkara en Ion-X glerið.
Vatn og ryk. Vatnshelt niður á 50 m og rykþétt (IP6X).
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.