Orkuflokkur (A til G): A Vöruupplýsingablað
iPhone 17 gerir hversdaginn betri. Hann er snöggur í allri notkun, með myndavél sem nær framúrskarandi myndum dag sem nótt og björtum skjá sem nýtur sín jafnt úti sem inni. Traustur félagi með rafhlöðu sem endist út daginn. Allt sem þú þarft í iPhone, í fullkomnu jafnvægi.
Verð frá 169.990 kr.
iPhone 17
ProMotion skjár, tvær 48 MP myndavélar og 256 GB í grunninn.





Hönnun
Ávalar brúnir, þynnri rammi utan um skjáinn og Ceramic Shield 2 að framan með þrefalt betri rispuvörn. iPhone 17 lítur vel út og heldur því.

Fimm litir. Lavender, Sage, Mist Blue, White og Black.
Camera Control. Taktu mynd, byrjaðu upptöku eða breyttu stillingum með einni snertingu.
Action button. Flýtileið að því sem þú notar mest, til dæmis hljóðlausri stillingu.
Skjár
6,3 tommu Super Retina XDR skjár með ProMotion sem fer upp í 120 Hz. Allt rennur mjúklega, leikirnir verða líflegri og með allt að 3000 nita birtu sést skjárinn vel úti í sól.

ProMotion. Allt að 120 Hz, sem lagar sig að því sem er á skjánum.
3000 nit. Hámarksbirta og 33% minni speglun.
Dynamic Island. Tilkynningar og Live Activities á sínum stað.
Myndavélar
48 MP Fusion aðalmyndavél með 2x aðdrætti í optískum gæðum og 48 MP ofurvíðlinsa með fjórfalt meiri upplausn en í iPhone 16. Að framan er ný 18 MP Center Stage myndavél sem víkkar rammann þegar vinirnir bætast í hópinn.

Center Stage. Snúðu rammanum úr skammsniði í langsnið án þess að snúa símanum.
Dual Capture. Taktu upp með fram- og bakmyndavél í einu.
4K 60 fps. Stöðug myndbönd í Dolby Vision, líka á hreyfingu.
Afköst og rafhlaða
A19-flagan knýr allt sem þú gerir í iPhone, líka kröfuharða leiki. Rafhlaðan dugar allan daginn og 10 mínútna hleðsla gefur allt að 8 klukkustunda myndspilun.
A19. 6 kjarna örgjörvi og 5 kjarna skjástýring.
Allt að 30 klst. Myndspilun á einni hleðslu.
50% á 20 mínútum. Með 40W hleðslutæki eða öflugra.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.
Nýjar vörur, tilboð og fréttir, beint í pósthólfið.