11″ Orkuflokkur (A til G): G Vöruupplýsingablað13″ Orkuflokkur (A til G): G Vöruupplýsingablað
iPad Air með M4 er hraðari en nokkru sinni og fæst í 11″ og 13″. Liquid Retina skjár, Center Stage myndavél að framan og rafhlaða sem endist allan daginn. Hann virkar með Apple Pencil Pro og Magic Keyboard, svo hann breytist í fartölvu þegar þú þarft.
Verð frá 149.990 kr.




Afköst
M4 er með 8 kjarna örgjörva, 9 kjarna skjástýringu með geislarakningu og 50% meira vinnsluminni en fyrri kynslóð. 16 kjarna Neural Engine flýtir fyrir gervigreind í mynd- og myndbandsvinnslu.
8 kjarna örgjörvi. Þrír afkastakjarnar og fimm sparneytnir.
12 GB. Vinnsluminni í öllum gerðum.
Wi-Fi 7. Hraðara net með nýju N1-flögunni.
Myndavélar
12 MP Center Stage myndavélin er á langhliðinni, svo hún er á réttum stað þegar iPad Air situr í Magic Keyboard. Center Stage fylgir þér og heldur þér fyrir miðju í myndsímtölum.

12 MP að framan. Á langhliðinni, fullkomin í myndsímtöl.
12 MP að aftan. Smart HDR myndir og 4K myndbönd.
Hljóð. Víðómur í láréttri stöðu og tveir hljóðnemar.
Magic Keyboard og Apple Pencil Pro
Magic Keyboard fyrir iPad Air er með 14 aðgerðalyklum og stórum snertifleti og fæst svart eða hvítt. Apple Pencil Pro festist með seglum á hliðinni og hleðst þar.

Kreistu. Verkfæraspjald birtist undir pennanum.
Snúðu. Nákvæm stjórn á pennum og penslum.
Find My. Finndu Apple Pencil Pro ef hann týnist.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.