MacBook Pro 14″ með M5 er gerð fyrir þá sem vilja afl án málamiðlana. M5 er ein þróaðasta flaga sem Apple hefur smíðað. Allt frá daglegum verkefnum upp í þunga klippivinnu, kóðun og gervigreind rennur áreynslulaust í gegn. Liquid Retina XDR skjárinn nær 1600 nita HDR-birtu með ProMotion (120 Hz), og rafhlaðan endist lengur en í nokkurri Mac áður, allt að 24 klukkustundir.
Verð frá 389.990 kr.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.