Fullkomnasta MacBook Pro til þessa. Nýi PROLED XDR skjárinn notar tvöfalt (tandem) OLED, með allt að 1000 nit stöðugri birtu yfir allan skjáinn, allt að 2000 nit hámarksbirtu og 10.000.000:1 skerpuhlutfalli. Hann styður bæði P3 og Adobe RGB litasvið, og í fyrsta sinn í Mac er hann snertiskjár. Dynamic Island kemur í stað hakans efst á skjánum.
Fæst í 14″ og 16″ með M5 Pro eða M5 Max, allt að 128 GB sameinuðu minni og allt að 16 TB geymslu. Rafhlaðan endist allt að 24 klst. Fæst í Space Black og Silver, með stöðluðu gleri eða nanóáferð.
Verð frá 549.990 kr.






PROLED XDR
Tvöfalt (tandem) OLED með allt að 1000 nit stöðugri birtu yfir allan skjáinn og allt að 2000 nit hámarksbirtu, bæði í HDR og SDR. Skerpuhlutfallið er 10.000.000:1 og skjárinn styður bæði P3 og Adobe RGB litasvið. Og nú geturðu snert hann.

Allt að 2000 nit. Hámarksbirta í HDR og SDR.
10.000.000:1. Skerpuhlutfall.
P3 og Adobe RGB. Breitt litasvið fyrir fagfólk.
Afköst
Öflugustu flögur sem Apple hefur smíðað í fartölvu fyrir fagfólk, með Neural Accelerator í hverjum skjástýringarkjarna. Allt að 128 GB sameinað minni og allt að 16 TB geymsla.

M5 Pro. Allt að 18 kjarna örgjörvi og 20 kjarna skjástýring.
M5 Max. Allt að 18 kjarna örgjörvi og 40 kjarna skjástýring.
Allt að 16 TB. Geymsla.
Hljóð og hönnun
14″ vegur aðeins 1,36 kg og 16″ 1,81 kg. Endurhannað hljóðkerfi með sex hátölurum skilar skýrari hljómi og 50% dýpri bassa, og rafhlaðan endist allt að 24 klst.

Frá 1,36 kg. 14″ með M5 Pro.
Sex hátalarar. 50% dýpri bassi.
Allt að 24 klst. Rafhlöðuending.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.
Nýjar vörur, tilboð og fréttir, beint í pósthólfið.