MacBook Pro

MacBook Pro 14″ með M5 er gerð fyrir þá sem vilja afl án málamiðlana. M5 er ein þróaðasta flaga sem Apple hefur hannað og ræður áreynslulaust við allt frá daglegum verkefnum upp í þunga klippivinnu, kóðun og gervigreindarverkefni. Neural Accelerator er innbyggður í hvern skjákjarna, svo gervigreindin vinnur hratt og orkunýtið beint í tölvunni. Liquid Retina XDR skjárinn nær 1600 nita HDR-birtu með ProMotion á 120 Hz og rafhlaðan endist lengur en í nokkurri Mac áður, allt að 24 klukkustundir.

Verð frá 389.990 kr.

Skjár

(+30.990 kr.)

Lyklaborð

Veldu lyklaborðsuppsetningu.

Samtals:
Vörunúmer: MBP14 Flokkar: ,
Biðpöntun

Nýtt

MacBook Pro

Hraðinn liggur í ættinni. Nú með M5, M5 Pro og M5 Max.

Verð frá 389.990 kr.

Helstu atriðin

M5, M5 Pro og M5 Max.
Ein stór og öflug fjölskylda.
M5, M5 Pro og M5 Max. Ein stór og öflug fjölskylda.
Lengsta rafhlöðuending Mac frá upphafi.
Allt að 24 klst. á einni hleðslu.
Lengsta rafhlöðuending Mac frá upphafi. Allt að 24 klst. á einni hleðslu.
Space Black og Silver.
Tveir glæsilegir litir.
Space Black og Silver. Tveir glæsilegir litir.

Afköst

Veldu þinn hraða

Öflugustu flögur sem Apple hefur smíðað í fartölvu fyrir fagfólk. Hver flaga í M5-fjölskyldunni er með Neural Accelerator í hverjum skjástýringarkjarna, geislarakningu af þriðju kynslóð og allt að tvöfalt hraðari geymslu en áður.

M5. Fyrir nám, vinnu og skapandi verkefni. Allt að 6x hraðari en M1.

M5 Pro. Allt að 18 kjarna örgjörvi og 20 kjarna skjástýring. Allt að 7,8x hraðari en M1 Pro.

M5 Max. Allt að 40 kjarna skjástýring og 128 GB minni. Allt að 8x hraðari en M1 Max.

Rafhlaða

Hugsaðu út fyrir innstunguna

MacBook Pro er með lengstu rafhlöðuendingu sem Mac hefur haft, allt að 24 klukkustundir. Afköstin eru þau sömu hvort sem hún er í sambandi eða ekki, og hraðhleðsla kemur henni í 50% á 30 mínútum.

Hugsaðu út fyrir innstunguna

Allt að 24 klst. Myndstreymi á einni hleðslu.

Allt að 14 klst. lengur en MacBook Pro með Intel-örgjörva.

Sömu afköst. Í sambandi eða á rafhlöðunni.

Skjár

Skjár sem gleður

Liquid Retina XDR skjárinn nær 1600 nitum í HDR og allt að 1000 nitum utandyra, en dimmist niður í 1 nit í myrkri. Með nanóáferð verða speglanir minni, jafnvel í sterkri birtu.

Skjár sem gleður

ProMotion. Allt að 120 Hz fyrir mjúka skrunun og leiki.

Nanóáferð. Færri speglanir og meiri skýrleiki.

Fleiri skjáir. Allt að tveir með M5, þrír með M5 Pro og fjórir með M5 Max.

Tengi, myndavél og hljóð

Tengdu allt

Hver MacBook Pro er með þrjú Thunderbolt tengi, HDMI, SDXC kortarauf, MagSafe 3 og heyrnartólatengi. Ef hún týnist finnurðu hana með Find My og getur læst henni eða eytt gögnum af henni úr fjarlægð.

Tengdu allt

Thunderbolt 5. Allt að 120 Gb/s með M5 Pro og M5 Max.

12 MP Center Stage. Heldur þér í mynd á fjarfundum.

Sex hátalarar. Spatial Audio og þrír hljóðnemar í stúdíógæðum.

Tæknilýsing

Skjár
14,2″ (3024 × 1964) eða 16,2″ (3456 × 2234) Liquid Retina XDR
ProMotion allt að 120 Hz, 1000 nit SDR, 1600 nit HDR
Nanóáferð í boði
Flaga
14″: M5, M5 Pro eða M5 Max
16″: M5 Pro eða M5 Max
Vinnsluminni
M5: 16–32 GB
M5 Pro: 24–64 GB
M5 Max: 36–128 GB
Rafhlaða
14″: allt að 24 klst. (M5), 22 klst. (M5 Pro), 20 klst. (M5 Max)
16″: allt að 24 klst. (M5 Pro), 22 klst. (M5 Max)
Myndstreymi
Myndavél
12 MP Center Stage með Desk View
Tengi
Þrjú Thunderbolt 4 (M5) eða Thunderbolt 5 (M5 Pro/Max)
HDMI, SDXC, MagSafe 3, heyrnartólatengi
Þráðlaust
M5: Wi-Fi 6E, Bluetooth 5.3
M5 Pro/Max: Wi-Fi 7, Bluetooth 6
Hljóð
Sex hátalarar með bassahátölurum, Spatial Audio, þrír hljóðnemar
Öryggi
Touch ID
Þyngd og þykkt
14″: frá 1,55 kg · 1,55 cm
16″: frá 2,14 kg · 1,68 cm
Geymsla
1 TB, 2 TB, 4 TB eða 8 TB
Litir
Space Black og Silver

Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.

Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.

Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.

Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.

Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.