MacBook Air 13″ er hönnuð fyrir lífið á ferðinni. Hún vegur aðeins 1,24 kg, er rúmlega sentimetri á þykkt og passar auðveldlega í töskuna. M5-flagan skilar leifturhröðum afköstum í námi, vinnu og skapandi verkefnum og þar sem tölvan er viftulaus vinnur hún í fullkominni þögn.
Liquid Retina skjárinn sýnir milljarð lita með 500 nita birtu, rafhlaðan endist í allt að 18 klukkustundir og hraðhleðsla kemur þér í 50 prósent á hálftíma. Center Stage myndavél, þrír hljóðnemar og rýmishljóð gera myndsímtöl skýr og eðlileg.
Verð frá 259.990 kr.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.