Orkuflokkur (A til G): A Vöruupplýsingablað

iPhone 18 Pro Max

iPhone 18 Pro Max sameinar stærsta skjá Pro línunnar og lengstu rafhlöðuendingu sem iPhone hefur boðið, allt að 45 klukkustundir í myndspilun. A20 Pro-flagan, smíðuð með 2 nanómetra tækni og gufukæld, og 48 MP Fusion-aðalmyndavél með breytilegu ljósopi skila betri myndum í lítilli birtu og áhrifamikilli dýptarskerpu. Minni Dynamic Island og 6,9 tommu ProMotion skjár, í heilsteyptri álhönnun með Ceramic Shield að framan og aftan. Fáanlegur í fjórum litum: Black, Silver, Glacier og Burgundy.

Tryggðu þér eintak úr fyrstu sendingum. Takmarkað magn í boði næstu vikurnar.

Verð frá 249.990 kr.

Vörunúmer: iPhone18ProMax Flokkur:
Biðpöntun

Nýtt

iPhone 18 Pro Max

Pro sem gengur lengra.

Verð frá 249.990 kr.

Helstu atriðin

Heilsteypt álumgjörð í fjórum litum: Black, Silver, Glacier og Burgundy.
Heilsteypt álumgjörð í fjórum litum: Black, Silver, Glacier og Burgundy.
Þrjár 48 MP myndavélar að aftan og 8x aðdráttur í optískum gæðum.
Þrjár 48 MP myndavélar að aftan og 8x aðdráttur í optískum gæðum.
A20 Pro með nýrri gufukælingu. Kraftur sem endist.
A20 Pro með nýrri gufukælingu. Kraftur sem endist.
Allt að 45 klst. myndspilun og 50% hleðsla á um 15 mínútum.
Allt að 45 klst. myndspilun og 50% hleðsla á um 15 mínútum.

Myndavél

Ljósopið lagar sig að birtunni

Ný 48 MP Fusion aðalmyndavél með breytilegu ljósopi stillir sig sjálf eftir birtu og dýptarskerpu. Um 50% betri myndir í lítilli birtu og skarpari smáatriði um allan rammann. Með Pro-stýringum í Camera-appinu ræður þú ljósopi, lokuhraða og hvítjöfnun.

Ljósopið lagar sig að birtunni

f/1.48. Hleypir inn mestu ljósi, innandyra og á kvöldin.

f/4.0. Allt í fókus, langt aftur í myndina.

Night mode. Betri Night mode myndir, hraðar en áður.

Aðdráttur

Komdu nær

Allar þrjár myndavélarnar að aftan eru 48 MP. Aðdráttarlinsan nær 8x aðdrætti í optískum gæðum og ofurvíðlinsan grípur víðáttuna og smæstu smáatriði í macro. Samtals 16x aðdráttarsvið.

Komdu nær

8x aðdráttur. 200 mm í optískum gæðum fyrir það sem er langt í burtu.

Ofurvíðlinsa. 48 MP landslag og macro í mikilli upplausn.

Center Stage. 18 MP myndavél að framan. Lárétt mynd án þess að snúa símanum.

Myndbönd

Myndbönd eins og í bíó

Taktu upp í 4K Dolby Vision í allt að 120 römmum á sekúndu og bættu Cinematic-áhrifum við venjuleg myndbönd eftir á. Myndböndin verða bjartari og skýrari í lítilli birtu og Audio Mix skilur tónlist og raddir frá óæskilegum hávaða.

Fyrir fagfólk. ProRes RAW, Apple Log 2 og genlock fyrir upptöku með mörgum vélum.

Dual Capture. Taktu upp með myndavélunum að framan og aftan í einu.

4K time-lapse. Í Dolby Vision HDR, með stöðugri mynd.

Afköst og rafhlaða

Svalur undir álagi

A20 Pro er öflugasta iPhone-flaga Apple til þessa. Ný gufukæling með þrefalt stærra yfirborð dreifir hitanum og skilar allt að 40% betri viðvarandi afköstum en iPhone 17 Pro í löngum leikjum og þungri vinnslu.

Svalur undir álagi

A20 Pro. 6 kjarna örgjörvi, 7 kjarna skjástýring og tvöföld 16 kjarna Neural Engine.

Allt að 45 klst. Myndspilun á einni hleðslu.

Snögg hleðsla. Um 50% á 15 mínútum með 60W hleðslutæki.

Tæknilýsing

Skjár
6,9″ Super Retina XDR, ProMotion allt að 120 Hz
1600 nit HDR, allt að 3000 nit úti
Flaga
A20 Pro
6 kjarna örgjörvi, 7 kjarna skjástýring, tvöföld 16 kjarna Neural Engine
Myndavélar að aftan
48 MP Fusion aðalmyndavél, breytilegt ljósop f/1.48–f/4.0
48 MP Fusion ofurvíðlinsa (13 mm)
48 MP Fusion aðdráttarlinsa (100 mm, 4x)
8x aðdráttur í optískum gæðum (200 mm)
Myndavél að framan
18 MP Center Stage
Myndbönd
4K Dolby Vision í allt að 120 römmum á sekúndu
ProRes allt að 4K120 á ytri disk
Rafhlaða
Allt að 45 klst. myndspilun
50% á um 15 mín. með 60W hleðslutæki
Hleðsla og tengi
USB-C (USB 3, allt að 10 Gb/s)
MagSafe og Qi2 allt að 25W
Efni og vörn
Heilsteypt álumgjörð
Ceramic Shield 2 að framan, Ceramic Shield að aftan
IP68
Öryggi
Face ID
SIM
eSIM
Þyngd og þykkt
249 g · 8,75 mm
Geymsla
256 GB, 512 GB, 1 TB eða 2 TB
Litir
Black, Silver, Glacier og Burgundy

Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.

Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.

Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.

Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.

Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.