Orkuflokkur (A til G): A Vöruupplýsingablað
iPhone 18 Pro er fyrir þá sem vilja það besta. A20 Pro-flagan, smíðuð með 2 nanómetra tækni og gufukæld, ræður við mest krefjandi verkefnin og nýja 48 MP Fusion-aðalmyndavélin með breytilegu ljósopi skilar betri myndum og myndskeiðum í lítilli birtu og meiri dýptarskerpu. Minni Dynamic Island, 6,3 tommu ProMotion skjár og rafhlaða sem endist allt að 36 klukkustundir í myndspilun. Allt í endingargóðri heilsteyptri álhönnun með Ceramic Shield að framan og aftan. Fáanlegur í fjórum litum: Black, Silver, Glacier og Burgundy.
Tryggðu þér eintak úr fyrstu sendingum.
Takmarkað magn í boði næstu vikurnar.
Verð frá 229.990 kr.




Myndavél
Ný 48 MP Fusion aðalmyndavél með breytilegu ljósopi stillir sig sjálf eftir birtu og dýptarskerpu. Um 50% betri myndir í lítilli birtu og skarpari smáatriði um allan rammann. Með Pro-stýringum í Camera-appinu ræður þú ljósopi, lokuhraða og hvítjöfnun.

f/1.48. Hleypir inn mestu ljósi, innandyra og á kvöldin.
f/4.0. Allt í fókus, langt aftur í myndina.
Night mode. Betri Night mode myndir, hraðar en áður.
Aðdráttur
Allar þrjár myndavélarnar að aftan eru 48 MP. Aðdráttarlinsan nær 8x aðdrætti í optískum gæðum og ofurvíðlinsan grípur víðáttuna og smæstu smáatriði í macro. Samtals 16x aðdráttarsvið.

8x aðdráttur. 200 mm í optískum gæðum fyrir það sem er langt í burtu.
Ofurvíðlinsa. 48 MP landslag og macro í mikilli upplausn.
Center Stage. 18 MP myndavél að framan. Lárétt mynd án þess að snúa símanum.
Myndbönd
Taktu upp í 4K Dolby Vision í allt að 120 römmum á sekúndu og bættu Cinematic-áhrifum við venjuleg myndbönd eftir á. Myndböndin verða bjartari og skýrari í lítilli birtu og Audio Mix skilur tónlist og raddir frá óæskilegum hávaða.
Fyrir fagfólk. ProRes RAW, Apple Log 2 og genlock fyrir upptöku með mörgum vélum.
Dual Capture. Taktu upp með myndavélunum að framan og aftan í einu.
4K time-lapse. Í Dolby Vision HDR, með stöðugri mynd.
Afköst og rafhlaða
A20 Pro er öflugasta iPhone-flaga Apple til þessa. Ný gufukæling með þrefalt stærra yfirborð dreifir hitanum og skilar allt að 40% betri viðvarandi afköstum en iPhone 17 Pro í löngum leikjum og þungri vinnslu.

A20 Pro. 6 kjarna örgjörvi, 7 kjarna skjástýring og tvöföld 16 kjarna Neural Engine.
Allt að 36 klst. Myndspilun á einni hleðslu.
Snögg hleðsla. Um 50% á 15 mínútum með 60W hleðslutæki.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.