Apple Pencil (2. kynslóð)

Apple Pencil (2. kynslóð) segulfestist á hlið iPad þar sem hann parast og hleðst þráðlaust. Hann skynjar þrýsting og halla og bregst við með nákvæmni niður á pixla og lítilli töf. Með tvísmelli skiptir þú um verkfæri, t.d. úr penna yfir í strokleður. Athugaðu að hann virkar ekki með nýjustu iPad Pro, iPad Air og iPad mini.

Virkar með

  • iPad Pro 12,9″ (3., 4., 5. eða 6. kynslóð)
  • iPad Pro 11″ (1., 2., 3. eða 4. kynslóð)
  • iPad Air (4. eða 5. kynslóð)
  • iPad mini (6. kynslóð)

Helstu eiginleikar

  • Nákvæmni niður á pixla og lítil töf
  • Skynjar halla og þrýsting
  • Tvísmellur til að skipta um verkfæri
  • Segulfestist á hlið iPad, parast og hleðst þráðlaust
  • Hover á iPad Pro 11″ (4. kynslóð) og iPad Pro 12,9″ (6. kynslóð)

29.990 kr.

Biðpöntun

Vörunúmer: MXN43ZM/A Flokkar: ,
Á lagerAfhent á 3–4 virkum dögum

Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.

Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.

Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.

Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.

Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.