Apple Pencil Pro er fullkomnasti penninn frá Apple. Hann skynjar þrýsting og halla, þú kreistir hann til að opna verkfæraspjald og snýrð honum til að stjórna stefnu pensils eða penna á meðan þú teiknar. Haptískt svar staðfestir aðgerðir og penninn segulfestist á hlið iPad þar sem hann parast og hleðst þráðlaust. Ef hann týnist finnur þú hann í Find My.
29.990 kr.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.