Nýtt frá Apple: MacBook Pro með snertiskjá, iPad mini og iMac með M6

Nýr MacBook Pro með PROLED XDR skjá

Apple kynnti í lok október fyrsta Mac-inn með snertiskjá, nýjan iPad mini með OLED skjá og iMac með M6 flögunni. Allt er komið í forsölu hjá Macland. En stærsta fréttin hjá okkur er önnur: þú getur sérpantað tölvuna nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana, í yfir 800 mismunandi útgáfum af Mac.

Nýr MacBook Pro með PROLED XDR skjá

MacBook Pro með PROLED XDR skjá

Þetta er stærsta breytingin á MacBook Pro í mörg ár. Skjárinn er tvöfaldur (tandem) OLED sem Apple kallar PROLED XDR, með allt að 1000 nita stöðugri birtu yfir allan skjáinn, 2000 nita hámarksbirtu og 10.000.000:1 skerpuhlutfalli. Hann styður bæði P3 og Adobe RGB litasvið, sem skiptir máli fyrir ljósmyndara og hönnuði. Hakið er horfið og Dynamic Island komin í staðinn.

Snertiskjár á MacBook Pro, fyrsti Mac með snertingu

Og nú geturðu snert hann. MacBook Pro er fyrsti Mac-inn með snertiskjá. Lyklaborðið og stýriflöturinn eru á sínum stað, en þegar það er fljótlegra að pota í skjáinn, til dæmis til að skruna, þysja eða spila á hljóðfæri í Logic, þá gerirðu það bara.

MacBook Pro með M5 Max
  • 14,2″ eða 16,3″ snertiskjár, nanóáferð í boði
  • M5 Pro eða M5 Max, allt að 18 kjarna örgjörvi og 40 kjarna skjástýring
  • Allt að 128 GB sameinað minni og allt að 16 TB geymsla
  • Sex hátalarar með 50% dýpri bassa
  • Allt að 24 klst. rafhlöðuending, 14″ vegur aðeins 1,36 kg
  • Space Black og Silver

Verð frá 549.990 kr. Áætluð afhending á stöðluðum útgáfum frá 13. nóvember. Skoða MacBook Pro með PROLED XDR skjá

Mac eftir þínu höfði

Í flestum verslunum færðu að velja á milli örfárra tilbúinna útgáfa af hverri tölvu. Þarftu meira minni eða stærri disk en það sem er til í hillunni þarftu annaðhvort að kaupa dýrari tölvu en þú þarft eða sætta þig við minna. Hjá Macland velurðu sjálfur flögu, minni, geymslu, lit og skjágler og við pöntum tölvuna fyrir þig, smíðaða eftir þinni pöntun.

TölvaÚtgáfur í boðiVerð frá
MacBook Pro PROLED XDR224549.990 kr.
MacBook Pro228389.990 kr.
iMac196289.990 kr.
MacBook Air100249.990 kr.
Mac mini42169.990 kr.
Mac Studio40469.990 kr.
  • Þú borgar fyrir það sem þú notar. Ljósmyndari þarf kannski 64 GB minni en ekki 8 TB disk. Forritari þarf kannski hraðari flögu en ekki nanóáferð. Þú setur saman þína tölvu.
  • Lyklaborð að eigin vali. Fartölvurnar fást með íslensku, alþjóðlegu ensku, bandarísku eða dönsku lyklaborði.
  • Skýr afhendingartími. Sérpantaðar tölvur eru merktar „Sérpöntun“ á vörusíðunni og áætluð afhending er 3–4 vikur.
  • Verðið strax. Verðið uppfærist um leið og þú velur, svo þú sérð alltaf hvað þín útgáfa kostar.

Ertu ekki viss um hvaða útgáfu þú þarft? Sendu okkur línu í gegnum spjallið eða þjónustuvefinn og við hjálpum þér að velja.

MacBook Pro 14″ með M6

MacBook Pro með Liquid Retina XDR skjá heldur áfram og grunnútgáfan fær nú nýju M6 flöguna með meiri minnisbandvídd. Hann er áfram í boði með M5 Pro og M5 Max í 14″ og 16″. Verð frá 389.990 kr. Skoða MacBook Pro

iMac með M6

iMac með M6

iMac fær M6 flöguna með 10 eða 12 kjarna örgjörva og skjástýringu, allt að 32 GB minni og allt að 2 TB geymslu. 2,5 gígabita Ethernet-tengi er nú í boði á straumbreytinum og skjárinn fæst með nanóáferð. Sjö litir eins og áður. Áætluð afhending á stöðluðum útgáfum frá 18. nóvember. Verð frá 289.990 kr. Skoða iMac

iPad mini með OLED skjá

iPad mini (A20 Pro) Midnight

Minnsti iPadinn fær stærstu uppfærsluna sína frá upphafi. 8,5 tommu OLED skjár, A20 Pro flaga, þynnri og léttari hönnun og í fyrsta sinn er iPad vatns- og rykvarinn (IP67). Hann fæst í Midnight og Starlight, með 128, 256 eða 512 GB geymslu, með eða án farsímatengingar og með nanóáferð á völdum útgáfum. Nýtt Smart Folio fæst líka. Verð verður kynnt á næstu dögum. Skoða iPad mini

Fréttir frá Macland

Nýjar vörur, tilboð og fréttir, beint í pósthólfið.

Með skráningu samþykkir þú að fá fréttir og tilboð frá Macland í tölvupósti. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.