iPhone Duo er fyrsti samanbrjótanlegi iPhone frá Apple. Opinn býður hann 7,6 tommu Super Retina XDR skjá, þann stærsta á iPhone til þessa, með sérhannaðri nanóáferð sem dregur úr glampa. Lokaður er hann með 5,4 tommu ytri skjá með ProMotion og skjá sem alltaf er kveikt á. Títanrammi, tvöfalt rafhlöðukerfi, A20 Pro-flaga, 48 MP Dual Fusion myndavélakerfi, Touch ID og stuðningur við Apple Pencil. Fáanlegur í Star White og Night Sky. Forpantanir hefjast 16. október og afhending 23. október 2026.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.