iPhone Air MagSafe rafhlaðan er hönnuð sérstaklega fyrir iPhone Air og smellur beint á bakið með seglum. Hún hleður símann þráðlaust á ferðinni, svo þú klárar daginn án þess að leita að innstungu.
Hægt er að hlaða rafhlöðuna og símann saman með USB-C. Hleðslustaðan sést á iPhone og í græjunni Rafhlöður.
22.990 kr.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.