Macland snýr aftur

Hæ kæru Maclendingar.

Ég heiti Hörður Ágústsson og stofnaði Macland ásamt Svölu Hjörleifsdóttur árið 2009 á Vífilsgötu í Reykjavík. Þar sátum við frameftir nóttu eftir nóttu með tvö ungabörn að gera við tölvur. Stuttu síðar hófum við sölu á Apple vörum og fyrstu viðskiptavinirnir fengu að velja um að sækja til okkar á Vífilsgötuna eða fá heimsendingu, þar sem ég mætti með GSM posa til þeirra.

Árið 2010 kom ástkær vinur minn, Hermann Fannar Valgarðsson, inn í myndina og úr varð fyrsta verslun Macland, sem opnaði 21. desember 2010 í gamla Sirkushúsinu við Klapparstíg 30. Hermann Fannar lést árið 2011 og þrátt fyrir að Hemmi væri ekki lengur með okkur urðu orkan, hugmyndirnar og framkvæmdagleðin eftir. Við tók tímabil þar sem Macland flutti milli staða á Laugavegi, opnaði svo verslun í Hafnarfirði, lokaði henni aftur, opnaði litla verslun í Kringlunni og rak verkstæði í Ármúla.

En það sem fer upp þarf að koma niður aftur, sagði einhver. Seint á árinu 2021 og snemma árs 2022 urðu miklar breytingar hjá þáverandi rekstrarfélagi Macland sem enduðu með því að ég hætti störfum og afskiptum af félaginu. Árið 2024 varð mikill bruni í Kringlunni og á fyrri hluta þessa árs (2025) var Makkland ehf. tekið til gjaldþrotaskipta.

Hvert einasta skref sem við tókum frá árinu 2009 var lærdómsríkt, og það er enginn vafi á því í dag að einmitt sú reynsla að hafa byrjað á svona hráum grunni skapaði þá ástríðu sem við berum fyrir Maclandinu okkar. Sá meðbyr og hvatning sem okkur hefur borist síðustu mánuði hefur verið ómetanlegur, en það sem kom mér kannski mest á óvart voru samskiptin við birgjana sem ég byggði upp áður en ég hætti. Þar voru skilaboðin skýr: Vertu velkominn til baka og gangi ykkur vel.

Það er falleg tilfinning sem fer um okkur þegar við lítum til baka á fyrstu viðgerðina sem var gerð á eldhúsborðinu á Vífilsgötunni. Allar hindranirnar, lærdómurinn, tækifærin og allt fólkið sem við tengdumst í gegnum Macland á árunum 2009–2022 gerðu þetta að veruleika. Þið, viðskiptavinir Macland, eruð hér enn. Fyrir það erum við Svala gríðarlega þakklát.

Nú byrjum við aftur, gamalt vín á nýjum belg. Eitt skref í einu, en markmiðið er það sama og alltaf: að veita bestu þjónustu á landinu fyrir Apple notendur. Til að byrja með verður enginn lager hér á landi. Ástæðan er einföld, við ætlum ekkert að flýta okkur og vonum að þið sýnið því skilning.

Litla, gamla og góða Macland er komið af stað, rólegra, yfirvegaðra en umfram allt hamingjusamara.

We’re back.
Hörður, Svala, Matthildur og Hrafnhildur ❤️