MacBook Air

MacBook Air er hönnuð fyrir lífið á ferðinni. Hún fæst 13″ eða 15″, 13″ gerðin vegur aðeins 1,23 kg, er rúmlega sentimetri á þykkt og passar auðveldlega í töskuna. M5-flagan skilar leifturhröðum afköstum í námi, vinnu og skapandi verkefnum og þar sem tölvan er viftulaus vinnur hún í fullkominni þögn.

Liquid Retina skjárinn sýnir milljarð lita með 500 nita birtu, rafhlaðan endist í allt að 18 klukkustundir og hraðhleðsla kemur þér í 50 prósent á hálftíma. Center Stage myndavél, þrír hljóðnemar og rýmishljóð gera myndsímtöl skýr og eðlileg.

Verð frá 249.990 kr.

Lyklaborð

Veldu lyklaborðsuppsetningu.

Samtals:
Vörunúmer: MBA13 Flokkar: ,
Biðpöntun

Nýtt

MacBook Air

Tekur flugið. Nú með M5.

Verð frá 249.990 kr.

Helstu atriðin

Allt að 18 klst. rafhlaða.
Hættir ekki fyrr en þú gerir það.
Allt að 18 klst. rafhlaða. Hættir ekki fyrr en þú gerir það.
Aðeins 1,23 kg.
Rennur beint í töskuna.
Aðeins 1,23 kg. Rennur beint í töskuna.
512 GB geymsla og 16 GB minni.
Snögg strax úr kassanum.
512 GB geymsla og 16 GB minni. Snögg strax úr kassanum.
M5-flagan.
Allt að 9,5x hraðari en M1.
M5-flagan. Allt að 9,5x hraðari en M1.
macOS Tahoe með Liquid Glass.
Spotlight gerir enn meira.
macOS Tahoe með Liquid Glass. Spotlight gerir enn meira.

Hönnun

Byggð til að ferðast

MacBook Air vegur aðeins 1,23 kg og er innan við 1,2 sentimetrar á þykkt, svo hún fer með þér hvert sem er. Hún er úr endurunnu áli sem þolir daglega notkun og fæst í tveimur stærðum.

Byggð til að ferðast

13 tommur. Fullkomin fartölva á ferðinni.

15 tommur. Meira pláss á skjánum fyrir mörg verkefni í einu.

Fjórir litir. Sky Blue, Silver, Starlight og Midnight, með MagSafe-snúru í sama lit.

Afköst

M5. Flagan sem flýgur

10 kjarna örgjörvi og allt að 10 kjarna skjástýring með Neural Accelerator í hverjum kjarna. Skiptu á milli fjölda appa og flipa, klipptu 4K myndbönd og spilaðu leiki, allt í hljóðlausri hönnun án viftu.

Allt að 9,5x. Hraðari en MacBook Air með M1.

Allt að 18 klst. Rafhlöðuending og 50% hleðsla á um 30 mínútum.

16 GB og 512 GB. Vinnsluminni og geymsla í grunnútgáfu.

Skjár, myndavél og hljóð

Bjartur skjár. Skýr mynd

Liquid Retina skjárinn sýnir milljarð lita með allt að 500 nita birtu. Center Stage myndavélin heldur þér í mynd á fjarfundum, þrír hljóðnemar draga úr bakgrunnshljóði og hátalararnir styðja Spatial Audio með Dolby Atmos.

Bjartur skjár. Skýr mynd

Liquid Retina. Milljarður lita, 500 nit og True Tone.

12 MP Center Stage. Alltaf í mynd, líka þegar þú hreyfir þig.

Desk View. Sýndu vinnuborðið ofan frá og vertu áfram í mynd.

Mac og iPhone

Betri saman

Sendu myndir og skjöl á milli tækja, haltu áfram með verkefni þar sem þú hættir og stjórnaðu iPhone beint úr Makkanum. Símtöl og skilaboð koma beint í tölvuna, svo þú þarft ekki að skipta um tæki.

iPhone Mirroring. Notaðu iPhone af skjá Makkans, þótt síminn sé í hleðslu í öðru herbergi.

Universal Clipboard. Afritaðu á iPhone og límdu á Makkanum, eða öfugt.

Símtöl og skilaboð. Svaraðu beint úr Makkanum.

Tæknilýsing

Skjár
13,6″ (2560 × 1664) eða 15,3″ (2880 × 1864) Liquid Retina
500 nit, milljarður lita, P3, True Tone
Flaga
M5
10 kjarna örgjörvi, 8 eða 10 kjarna skjástýring, 16 kjarna Neural Engine
Vinnsluminni
16 GB, 24 GB eða 32 GB
Rafhlaða
Allt að 18 klst. myndstreymi, 15 klst. á netinu
Myndavél
12 MP Center Stage með Desk View
Tengi
MagSafe 3, tvö Thunderbolt 4 (USB-C)
Heyrnartólatengi
Þráðlaust
Wi-Fi 7, Bluetooth 6
Hljóð
13″: fjórir hátalarar
15″: sex hátalarar
Spatial Audio, Dolby Atmos
Öryggi
Touch ID
Þyngd og þykkt
13″: 1,23 kg · 1,13 cm
15″: 1,51 kg · 1,15 cm
Geymsla
512 GB, 1 TB, 2 TB eða 4 TB
Litir
Sky Blue, Silver, Starlight og Midnight

Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.

Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.

Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.

Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.

Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.