iMac sameinar kraft og fegurð í einni nettri heild. M4-flagan er allt að 1,7 sinnum hraðari en iMac með M1 í daglegum verkefnum og allt að 2,1 sinnum hraðari í krefjandi myndvinnslu. 4,5K Retina skjárinn gerir liti og smáatriði ljóslifandi og 12 MP myndavél með Center Stage heldur þér í mynd á fjarfundum. Fæst í Blue, Green, Pink og Silver, með Magic Keyboard og Magic Mouse.
Verð frá 289.990 kr.




Afköst
M4-flagan gerir allt sem þú gerir enn sneggra. Skjástýring með geislarakningu skilar ótrúlega raunverulegri grafík og allt að 32 GB af hraðara sameinuðu minni heldur mörgum öppum og leikjum gangandi án hiks. Heimilisbókhaldið, reksturinn eða skólaverkefnin, allt gengur hraðar.

Allt að 6x hraðari en vinsælasti iMac með Intel-örgjörva.
Allt að 2,1x hraðari en iMac með M1 í krefjandi skapandi vinnu.
Allt að 10 kjarnar. Í örgjörva og skjástýringu.
Skjár
24 tommu 4,5K Retina skjárinn er frábær til að vinna í mörgum gluggum, horfa á myndir og spila leiki. Birta upp á 500 nit og P3 litasvið með yfir milljarði lita gera allt á skjánum skýrt og lifandi. Nanóáferðin dregur svo úr speglun og glampa, til dæmis við glugga.

4,5K Retina. 4480 × 2520 punktar á 24 tommum.
500 nit. Milljarður lita og P3 litasvið.
Nanóáferð. Í boði á gerðunum með fjórum tengjum.
Myndavél, hljóðnemar og hátalarar
12 MP Center Stage myndavélin heldur þér í miðri mynd á fjarfundum, líka þegar þú hreyfir þig eða fleiri bætast við. Desk View sýnir skrifborðið ofan frá á meðan þú sést áfram. Hljóðnemar í stúdíógæðum skila röddinni skýrt og sex hátalarar fylla herbergið.
Center Stage. Fylgir þér og heldur þér í mynd.
Þrír hljóðnemar. Stefnuvirkir, svo fólk heyrir í þér en ekki umhverfinu.
Sex hátalarar. Djúpur bassi, Spatial Audio og Dolby Atmos.
iMac og iPhone
Með iPhone Mirroring sérðu og notar iPhone beint á stóra skjánum og síminn helst læstur á meðan. Símtöl og skilaboð koma beint í Makkann, svo þú þarft ekki að skipta um tæki.
iPhone Mirroring. Dragðu skrár, myndir og myndbönd á milli tækja.
Universal Clipboard. Afritaðu á iPhone og límdu á Makkanum, eða öfugt.
Continuity Camera. Taktu mynd eða skannaðu skjal og það birtist í Makkanum.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.