Orkuflokkur (A til G): E Vöruupplýsingablað
iPad mini er með 8,3″ Liquid Retina skjá og A17 Pro-flögu, svo hann ræður auðveldlega við leiki, myndvinnslu og allt þar á milli. Fullkominn til að lesa, teikna og taka með sér hvert sem er.
Hann virkar með Apple Pencil Pro og Apple Pencil (USB-C), er með USB-C tengi og 12 MP myndavél að framan með Center Stage. Fæst með 128 GB eða 256 GB geymslu, með eða án 5G.
Verð frá 119.990 kr.
iPad mini
Allt sem þú elskar við iPad, í lófanum.





A17 Pro
A17 Pro-flagan er allt að 30% hraðari en í fyrri kynslóð og ræður við krefjandi leiki og öpp. Rafhlaðan endist allan daginn.
6 kjarna örgjörvi. Tveir afkastakjarnar og fjórir sparneytnir.
5 kjarna skjástýring. Fyrir leiki og grafík.
Allt að 10 klst. Á netinu eða í myndspilun.
Apple Pencil Pro
iPad mini styður Apple Pencil Pro. Kreistu pennann til að opna verkfæri, snúðu honum til að stýra penslinum og tvíbankaðu til að skipta á milli penna og strokleðurs.
Kreistu. Verkfæri, línur og litir birtast strax.
Snúðu. Nákvæm stjórn á pennum og penslum.
Hover. Sjáðu hvar oddurinn lendir áður en þú snertir skjáinn.
Skjár og tengingar
8,3 tommu Liquid Retina skjárinn er með True Tone, P3 litum og lítilli speglun, svo textinn er skýr og litirnir lifandi. Wi-Fi 6E er allt að tvöfalt hraðara en í fyrri kynslóð.
326 pt/tommu. Skarpur texti og myndir.
Wi-Fi 6E. Allt að tvöfalt hraðara en áður.
USB-C. Allt að 10 Gb/s.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.