Smart Folio fyrir iPad mini er þunnt og létt hulstur sem verndar bæði fram- og bakhlið. Þegar þú opnar það vaknar iPad mini sjálfkrafa og fer í hvíld þegar þú lokar því. Það festist með seglum og brýtst auðveldlega í stand, hvort sem þú vilt lesa, horfa eða skrifa.
Passar á iPad mini (A20 Pro). Fæst í Navy Blue og Taupe.
Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.
Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.
Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.
Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.
Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.