
Apple hélt kynninguna „Welcome Home“ í New York í dag og þar var heimilið í aðalhlutverki. Nýr HomePod mini, nýtt Apple TV 4K og glænýtt tæki sem heitir HomeView. Við förum yfir það helsta, hvað kemur til Íslands og hvað ekki, að minnsta kosti ekki strax.

Loksins kom alvöru uppfærsla á HomePod mini. Hann fær nýja S10 örgjörvann frá Apple, Wi-Fi 6E og Bluetooth 6 og kemur í fimm litum: bleikum, grænum, bláum, hvítum og miðnætursvörtum. Ofan á hátalaranum er nýtt ljós, Sound Glow, sem lýsir í takt við tónlistina í litum plötuumslagsins sem er í spilun.
Það sem við erum spenntust fyrir: HomePod mini 2 getur nú verið sjálfgefinn hátalari fyrir Mac. Tveir svona við hliðina á iMac og þú ert kominn með frábært hljóð á skrifborðið. Hann virkar líka einn og sér, sem stereópar eða í mörgum herbergjum, og getur látið vita ef reykskynjari eða kolsýringsskynjari fer í gang á heimilinu.

HomePod mini 2 kostar 29.990 kr. hjá Macland og þú getur forpantað hann strax í dag. Apple hefur sölu 30. október. Forpanta HomePod mini 2

Fyrsta nýja Apple TV í fjögur ár. Útlitið er óbreytt en innvolsið er allt annað. A19 örgjörvinn er allt að 50% hraðari í vinnslu og með allt að tvöfalt meiri grafíkafköst en fyrri kynslóð. Nýr AV1 afkóðari gerir streymi skilvirkara, Wi-Fi 7 og Bluetooth 6 bætast við og þrír hljóðnemar gera það að verkum að hægt er að tala við Siri án fjarstýringar, líka á meðan eitthvað er í spilun. Eitt minni í boði, 128 GB.
Siri Remote fær Find My með Precision Finding og innbyggðan hátalara sem pípir þegar þú leitar að henni. Hún týnist sem sagt ekki lengur ofan í sófanum. Nýju fjarstýringuna má líka kaupa sér og hún virkar með eldri Apple TV.

Svo er það heimabíóið. Nýja Apple TV getur stýrt fjórum HomePod hátölurum í einu, tveimur að framan og tveimur að aftan, annaðhvort fjórum HomePod mini 2 eða fjórum HomePod (2. kynslóð).
Apple TV 4K kostar 54.990 kr. hjá Macland og er komið í forsölu. Apple hefur sölu 13. nóvember. Forpanta Apple TV 4K
Hér kemur leiðinlegi hlutinn. Stærsta nýjungin í dag fer ekki í sölu í Evrópusambandinu og óvíst er hvenær hún kemur.

HomeView er nýr snjallskjár fyrir heimilið með 7 tommu Liquid Retina skjá og A18 örgjörva. Hann stendur á hvelfdum hátalarafæti á borði eða hangir á vegg og sameinar tónlist, FaceTime með Center Stage, uppskriftir með tímamælum, myndir og stjórnun á öllum snjalltækjum heimilisins. Hann getur sýnt allt að níu myndavélar í einu.
HomeView þekkir allt að sex heimilismenn í sjón og hver og einn fær sinn eigin heimaskjá. Skilaboð og dagatal birtast aðeins þegar rétta manneskjan stendur fyrir framan skjáinn með iPhone nálægt.

Hann kemur í silfur, starlight, rósbleikum og space gray og kostar 299 dollara. Hann fer í sölu 13. nóvember í Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Indlandi, Singapúr og Suður-Afríku. Apple segir sjálft að HomeView verði ekki seldur í Evrópusambandinu þar sem nýja Siri AI er ekki í boði í iOS innan ESB og að fyrirtækið vinni með ESB að lausn. Engin tímasetning hefur verið gefin upp.

Apple kynnti líka Apple Home Collection, línu af snjalltækjum sem Apple hannaði með LG og Schneider Electric: dyrabjöllu með myndavél, inni- og útimyndavélar, snjalllás sem opnast þegar þú gengur að dyrunum með iPhone, hitastilla og skynjara. Tækin eru pöruð með einni snertingu við iPhone, án sérstaks apps eða aðgangs. Línan kemur í desember en aðeins í Bandaríkjunum og Kanada, myndavélarnar og dyrabjallan líka í Bretlandi.
Nýja Siri AI, sem getur átt samtal, þekkir þitt samhengi og vinnur á milli appa, kemur í beta á HomeView og Apple TV 4K (og eldri Apple TV 4K frá 2. kynslóð með tvOS 27.2) og síðar á HomePod mini 2. Hún er í byrjun aðeins á ensku og aðeins í átta löndum, og ekkert ESB-land er þar á meðal. HomePod mini 2 og Apple TV 4K koma til Evrópu en án nýju Siri til að byrja með.
Ísland er ekki í Evrópusambandinu en Apple vörur til Íslands koma í gegnum evrópska dreifingu. HomePod mini 2 og nýja Apple TV 4K koma því til okkar og eru þegar komin í forsölu hjá Macland. HomeView og Home Collection verða ekki í boði hér í bili. Við fylgjumst með og segjum ykkur frá um leið og eitthvað breytist.
Ertu með spurningu um nýju vörurnar eða viltu vera fyrst/ur í röðinni? Sendu okkur línu á [email protected] eða spjallaðu við okkur hér á síðunni.
Myndir: Apple