Apple TV 4K

Apple TV 4K breytir sjónvarpinu í alvöru afþreyingarmiðstöð. A15 Bionic-flagan gerir allt snarpt og lipurt, og 4K með Dolby Vision, HDR10+ og Dolby Atmos skilar bjartari, lifandi mynd og hljóði sem umlykur þig. Allar helstu streymisveitur, Apple TV+, Apple Music og Apple Arcade á einum stað.

Siri-fjarstýringin er með snertivirkt smelliborð og USB-C hleðslu, þú getur stýrt spilun úr iPhone og staðfest kaup með Face ID. 128GB útgáfan er með Ethernet-tengi og Thread-stuðningi fyrir snjallheimilið.

Verð frá 39.990 kr.

Vörunúmer: AppleTV4K Flokkur:
Biðpöntun

Við ætlum að byrja smátt og fara rólega af stað. Það er engin ástæða til að flýta sér. Vörurnar okkar koma frá birgjum í Evrópu, þeim sömu og áður.

Það er ekki á döfinni að opna verslun, en hver veit hvað gerist í framtíðinni. Við sendum vörur með Dropp og Póstinum um allt land og meira að segja til útlanda.

Langoftast 2-3 virka daga en á því geta auðvitað verið undantekningar. Við ætlum ekki að flýta okkur í gang og það er ekki áhersluatriði hjá okkur að byggja upp stóran lager. Fókus á góða þjónustu er og hefur alltaf verið okkar aðall.

Þú einfaldlega sendir okkur línu hér í gegnum þjónustuvefinn og við leysum málið hratt og vel með þér.

Hörður Ágústsson og fjölskylda. Þau sömu og stofnuðu Macland árið 2010.