Skemmtilegar jólavörur

12. desember 2012

Kæru Maclendingar. Hér er smá listi sem við tókum saman yfir þær vörur sem okkur finnst mest spennandi um þessar mundir. Athugið að listinn er frekar langur, þannig að ekki hika við að „skrolla“ eða „skruna“ niður.

Einnig munum við bæta við listann fram að jólum.

 

pi_463_1339672181_promotional_0

iPhone 4S hefur lækkað hratt í verði og er nú kominn undir hundrað þúsund krónur!

Mikið úrval aukahluta fyrir iPhone 4 og iPhone 4S á lager.
Verð nú aðeins 99.990

 

 

 

__________________________________________________________________

 

 

Nýr iPod Nano var kynntur seint í haust. Fjölmargir fallegir litir og glæný hönnun gera þessa græju að mest spennandi iPod Nano hingað til.

Skoðaðu litina í vefverslun okkar.
Verð 39.990

 

 

 

__________________________________________________________________

appletv (1)Apple TV – þriðja kynslóð.

Ef þú vilt eignast fyrstu Apple vöruna þína þá er Apple TV málið.

Apple TV vinnur undursamlega vel með iPad, iPhone, iPod, makkanum þínum og jafnvel Windows tölvunni þinni (þótt ótrúlegt sé). Leigðu þér/kauptu myndir og þætti. Netflix, Hulu. Playmo.tv. Listinn yfir möguleika er endalaus.

Verð 24.990

 

__________________________________________________________________

pi_824_1349186749_promotional_0

 

AIAIAI heyrnartól

 

Við vorum ekki lengi að sannfærast um gæði dönsku heyrnartólanna frá AIAIAI.

 

Falleg hönnun og enn betri hljómburður. Til í öllum stærðum og gerðum… og jú öllum litum.

Verð frá 7.990

 

 

__________________________________________________________________

Gjafabréf í Macland

Það er sagt að á jólum fái nú allir eitthvað fallegt. En ef þú ert í basli með að finna réttu gjöfina þá eru fallegu gjafabréfin okkar tilvalin gjöf.

Snillingarnir hjá Undralandinu og Reykjavík Letterpress hönnuðu og prentuðu þessi fallegu gjafabréf fyrir okkur, og jú ykkur auðvitað.

Þú velur upphæðina!

 

__________________________________________________________________

pi_687_1337872317_promotional_0Lacie Rikiki flakkari/afritunardiskur

Ekkert er meira súrt en að horfa framan í viðskiptavin þegar svarið er „Nei“ við spurningunni : „Áttu einhver öryggisafrit af gögnunum þínum“.

Leystu það vandamál með nettum og léttum flakkara. Þarf ekki aukarafmagn.

 

Verð frá 16.990

 

Fleira skemmtilegt