AIAIAI heyrnartólin komin á lager
8. nóvember 2011
AIAIAI heyrnartólin hafa fengið frábæra dóma en við hjá Macland leggjum það ekki í vana okkar að bjóða upp á eitthvað annað en það allra besta.
Danir eru þekktir fyrir flotta hönnun og hljómgæðin eru heldur ekki af verri endanum. AIAIAI heyrnartólin koma í 3 útgáfum.
- Pipe – verð 12.990
- Tracks – verð 14.990
- DJ – verð 39.990
Pipe útgáfan er af þessari klassísku „in-ear“ gerð heyrnartóla en stór plús er að á öllum AIAIAI Pipe heyrnartólunum er að finna hljóðnema sem gerir þau mjög áhugaverð fyrir eigendur að iPhone. Pipe heyrnartólin eru hönnuð fyrir iPhone/iPod/iPad.
Tracks útgáfan er klassísk í öllum skilningi, tímalaus hönnun og gríðarlega skemmtilegur retro fílingur í þeim. Hljómurinn er eins og í öðrum AIAIAI vörum frábær.
DJ útgáfan er flaggskipið frá AIAIAI og ljóst er að mikið hefur verið lagt í þessi heyrnartól enda eru þau ætluð þeim allra kröfuhörðustu. Eins og áður hefur verið sagt er hönnunin virkilega flott og hljómurinn í DJ-1 mun ekki svíkja nokkurn einasta mann.
AIAIAI vörulínan er greinilega komin til að vera og við hjá Macland hlökkum til að sjá vörumerkið vaxa enn frekar.
Eigum þessar vörur á lager hjá okkur á Klapparstíg 30, endilega kíktu við og prófaðu.