
Apple TV 4k
Nýjasta Apple TV er bylting í myndgæðum. Styður 4K háskerpusjónvörp og býður upp á mögnuð myndgæði með High Dynamic Range.
Þú getur sleppt myndlyklinum og horft á sjónvarp í gegnum netið, t.d. með áskrift 365, eða
ókeypis með RÚV appinu. Ótal önnur sjónvarpsforrit eins og Hulu, Netflix, HBO, Showtime. Listinn er nær endalaus.
Kemur með innbyggðu App Store þar sem þú getur náð í forrit og tölvuleiki beint í græjuna.

Fjarstýringin
Siri fjarstýringin er með Bluetooth 4.0, hljóðnema, snertifleti, hreyfiskynjara og hleðslurafhlöðu.
Hægt er að kaupa auka fjarstýringu til að fleiri geti spilað leiki í einu.
Einnig fæst Remote Loop ólin sem kemur í veg fyrir að þú missir fjarstýringuna í gólfið.