Macland býður WHOOSH velkomið
30. maí 2015
Við erum stolt af því að tilkynna endurkomu WHOOSH hreinsiefnisins í Macland. WHOOSH hefur verið til sölu hjá okkur af og til í gegnum árin en erfitt hefur verið að nálgast hana hjá birgjum okkar erlendis.
Nú er WHOOSH komið í sölu, „beint frá býli“ eins og einhver myndi segja. Við höfum notað WHOOSH á verkstæðinu okkar nú í um 4 ár, en að okkar mati er ekkert efni til sem þrífur skjái og aðra hluti á tæknidótinu okkar betur en WHOOSH.
Smelltu hér til að skoða betur og kíktu á okkur á Laugaveg 23 eða í Helluhraun 18 og fáðu að prófa.