Þá skaltu sippa þér í póstforritið þitt og senda okkur atvinnuumsókn.
Ferilskrá með mynd óskast á vinna@macland.is
Í dag kynnti Apple uppfærðan iMac en sterkur orðrómur hafði verið uppi í nokkrar vikur um að eitthvað væri í bígerð. Ytra útlit iMac breytist ekkert en það sem er á bak við tjöldin fær væna uppfærslu.
- Nýir örgjörvar (2.7GHz Quad-Core i5 upp í 3.4GHz Quad-Core i5)
- Hægt er að sérpanta Quad-Core i7 örgjörva
- Thunderbolt tengi eins og er á MacBook Pro
- 1 Thunderbolt tengi á 21″ | 2 Thunderbolt tengi á 27″
- FaceTime HD myndavél
- Allt að 3x betri skjákort
Sama verð er á tölvunum í USA ásamt því að þær hafa allar áfram 4GB í vinnsluminni. IPS skjárinn sem allir elska heldur áfram að lýsa okkur veginn ásamt SD kortalesara. Svo fylgir þráðlaust Apple lyklaborð og Magic Mouse að sjálfsögðu áfram.
Tryggðu þér eintak úr fyrstu sendingum með því að forpanta hér.
Við erum alveg ótrúlega ánægð með viðtökurnar við auglýsingunni okkar eftir starfsfólki. Fjöldinn sem sótti um var miklu meiri en við gerðum ráð fyrir og erum við gríðarlega þakklát fyrir það.
Ákveðið var að ráða Sigga númer 2 og höldum við því áfram því skemmtilega trendi að hafa starfsmenn að nafni Sigurður.
Þökkum aftur kærlega fyrir umsóknirnar.
Já, við höfum heldur betur farið skemmtilega af stað og nú þurfum við að bæta við fólki í verslunina okkar. Endilega hafið samband á vinna@macland.is og við höfum samband um hæl.
Vinnutími er ca. 10-18 virka daga og svo eru laugardagar inni í myndinni.
Flott væri að fá senda ferilskrá, ekki væri verra að hafa mynd.
David mun svara ykkur eins fljótt og hann getur. Hlökkum til að heyra frá ykkur.
*ath. það er ekki skilyrði að vera sveitt Apple nörd, en það skaðar ekki að hafa nokkuð góða þekkingu á Apple og þeirra vörum.


