Þá skaltu sippa þér í póstforritið þitt og senda okkur atvinnuumsókn.
Ferilskrá með mynd óskast á vinna@macland.is
Við hjá Macland erum mjög hrifin af því að uppfæra eldri tölvur og gleðja viðskiptavini með ýmsum uppfærslum.
Nú er SSD tæknin komin á nokkurt skrið og vinsælasta uppfærslan hjá okkur felst í því að setja SSD “harðan disk” í tölvuna ásamt því að bæta við öðrum disk þar sem geisladrifið var áður.
Þetta þýðir að eldri tölvur, t.d. MacBook Pro frá 2006 eða iMac frá 2007 umbreytast úr því að vera ágætist vinnuhestar yfir í sportbíl á sterum.
Aðgerðin er einföld og felst í eftirtöldu :
- SSD diskur keyrir stýrikerfið + forrit
- Auka harði diskurinn geymir öll gögn (iPhoto, iTunes, Documents og svo frv.)
- Geisladrifið er fjarlægt og sett í hýsingu sem tengd er með USB
Kostnaður við svona breytingu er eftirfarandi :
- Data-Doubler / Tvöfaldarinn – 14.990 (lækkað verð, var áður 19.990)
- Vinna – 13.500
- SSD diskur – frá 39.990
Ýmsar útfærslur eru til af þessari uppfærslu en sú algengasta er að viðskiptavinur kaupir SSD + Tvöfaldarann og nýtir t.d. harða diskinn sem fyrir er í tölvunni.
Dæmi er uppfærsla sem framkvæmd var um daginn hjá okkur fyrir viðskiptavin með 2009 árgerð af iMac 27″. Viðkomandi var orðinn frekar ósáttur með hversu hæg tölvan var orðin og ákvað að skella sér á SSD + tvöfaldara til að þurfa ekki að uppfæra í nýja tölvu með tilheyrandi kostnaði.
Svona leit sú uppfærsla út kostnaðarlega séð :
- SSD – 39.990
- Tvöfaldari – 14.990
- Vinna – 13.500
Samtals : 68.480
Niðurstaðan var brakandi fersk og hröð iMac tölva sem viðkomandi hafði enga grun um að gæti staðið sig svona vel. 120GB SSD + 2TB harður diskur og tölvan hreinlega öskraði úr hraða.
Svona uppfærsla hentar jafnt fyrir Mac Pro, MacBook Pro, MacBook, Mac Mini eða iMac enda um að ræða gæðavöru frá vinum okkar hjá Macsales.com
Hafðu samband á verslun@macland.is og við gerum tilboð í uppfærsluna eins og þér hentar.
Lausnin er nefnilega ekki alltaf að kaupa bara nýja tölvu.
Eftir frábærar viðtökur við grein okkar um Tvöfaldarann fengum við töluvert af beiðnum um svipaða lausn fyrir eldri tölvur. Nú er hún komin á lager hjá Macland.
Nú getur þú uppfært gömlu fartölvuna (allar tölvur frá 2008 og eldri) með því að skella 2 hörðum diskum í hana. Til dæmis væri hægt að setja 120 SSD fyrir stýrikerfið og svo t.d. 500GB hörðum disk fyrir gögnin.
Kostnaður við þessa uppfærslu er :
Continue reading »
Fartölvur hafa oftast eingöngu eina rauf fyrir harðan disk. Með Tvöfaldaranum frá Macsales er nú hægt að hafa 2 diska í einni og sömu fartölvunni. Nú geturðu sett allt að 750GB harðan disk í fartölvuna eða SSD (solid state/flash drif) til að gera hana enn hraðari en þú hefðir getað ímyndað þér.
Tvöfaldarinn kemur í stað geisladrifsins í tölvunni og allir 2.5″ SATA harðir diskar (9.5mm á hæð hámark) passa í Tvöfaldarann. Í dag er hægt að nálgast nánast allan hugbúnað í gegnum internetið en ef þú vilt halda geisladrifinu þá eru hagkvæmar lausnir til hjá t.d. Tölvutek.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig er hægt að nota Tvöfaldarann:
- Bæta við auka disk í tölvuna til að auka plássið og nota 2 diska í sömu fartölvunni.
- Bæta við auka disk í tölvuna og stilla þá saman til að mynda eitt stórt drif (SPAN)
- Setja 2 eins diska í tölvuna og stilla þá sem eitt RAID-0 Stripe drif.
- Nota aukadrifið sem Time Machine afritunardisk.
- Nota aukadrifið algjörlega undir Windows stýrikerfið.
Tvöfaldarinn býður upp á mikla möguleika bæði fyrir glænýjar tölvur sem og t.d. tölvur frá 2009 sem þurfa að fá smá ást og umhyggju.
Við höfum sett Data doubler í þó nokkuð af tölvum fyrir viðskiptavini en algengasta útfærslan er á þá leið að stýrikerfið er sett upp á SSD disk sem inniheldur þá stýrikerfi + forrit. Svo er settur 500GB eða 750GB harður diskur í Tvöfaldarann til að halda utan um öll gögn, t.d. Home möppuna (Documents, iPhoto, iTunes) og svo frv.
Macland er með Tvöfaldarann á lager á aðeins 19.990. Ísetning kostar 9.000.
Heildarkostnaður við algengustu uppfærsluna væri á þessa leið.
- 2 tímar á verkstæði – 2 * 9000 = 18.000
- Tvöfaldarinn – 19.990
- 120GB SSD diskur – 44.990
- 500GB HDD diskur – 12.990
Samtals : 95.970
Þetta er dágóð summa, en þegar horft er á að nýjar 15″ MacBook Pro fartölvur kosta yfir 300.000 þá er þetta ekki mikið í þeim samanburði, sérstaklega þegar horft er á hraðaaukninguna sem SSD uppfærslan gerir ein og sér.
Endilega kíkið við í verslunina okkar og skoðið sýningareintak af 13″ MacBook Pro með 120GB SSD, 500GB HDD og Tvöfaldaranum.
Síðan við opnuðum dyrnar 21.desember 2010 hefur verið virkilega gaman að taka á móti viðskiptavinum, allt frá fólki sem vill vita hvernig þú gerir @ merkið á makkanum og upp í það að selja tölvur til, sem og þjónusta stórfyrirtæki.
En eins og titillinn á fréttinni segir, þá erum við ekki bara verslun. Við erum með 2 starfsmenn á verkstæðinu okkar og við metum stöðuna á tölvunni á staðnum, með þér. Engin bið, ekkert vesen.
Macland gerir við :
- Apple tölvur
- iPhone
- iPod
- Aðrar Apple vörur (t.d. Time Capsule)
- Harða diska (gagnabjörgun)
Verðlistinn okkar er mjög einfaldur
- 1 tími á verkstæði : 9.000 m.vsk
- 1/2 tími á verkstæði : 4.500 m.vsk
Macland gerir tilboð í viðgerð áður en nokkur kostnaður fellur á viðskiptavin.
Macland tekur einnig að sér uppsetningar í heimahúsum og hjá fyrirtækjum.
Hafið samband við okkur á hjalp@macland.is, í síma 580-7500 eða einfaldlega kíkið á okkur á Klapparstíg 30.




