og auðvitað nýr 27″ Apple Cinema Display. Ekki slæmur dagur í dag hjá Apple, þvert á móti.

Lion er reyndar búið að vera tilbúið í 2 vikur og útgáfan í dag er sú sama og tilkynnt var um daginn sem Gold Master sem er jákvætt því þá þurfum við ekki að uppfæra aftur :)

Apple lét ekki þar við standa og nú er MacBook hvíta horfin af sjónarsviðinu og opnar dyrnar fyrir MacBook Air 11″ og MacBook Pro 13″ sem “entry-level” tölvurnar í fartölvulínu Apple.

Byrjum á Lion. Það kostar 29$ og er eingöngu aðgengilegt eins og staðan er í dag í gegnum App Store hjá Apple. Fyrir okkur Íslendinga er smá krókaleið nauðsynleg til að komast í Ljónið en snillingarnir hjá Eplakort.is eiga ráð undir hverju rifi. Smelltu þér á Eplakort.is, útbúðu þér aðgang í iTunes Store (ef þú ert ekki nú þegar með hann) og fáðu þér 50$ inneignarkort. Ef þú ert í vandræðum með að sækja þér Lion þá getum við hjá Macland aðstoðað þig, kíktu bara á okkur í einn rjúkandi kaffibolla og við græjum þetta með þér.

Apple mun bjóða Lion á USB kubb sem er væntanlegur til landsins í ágúst/september. Þangað til er eina leiðin til að nálgast Lion í gegnum App Store.

Nýjungarnar í Lion eru svakalegar og eru allar sýningartölvur í Macland komnar með Ljónið og hvetjum við ykkur til að kíkja við og skoða kræsingarnar. Sjón er sögu ríkari og því ætlum við ekki að fara nánar í þá nýju fítusa sem þar er að finna. Kaffibolli og nördaspjall er miklu skemmtilegra :)

Næst skulum við ræða um MacBook Air en þetta litla yndi fékk svakalega uppfærslu í dag. Core i5 og i7 (sérpöntun) örgjörvar ásamt 4GB vinnsluminni í öllum týpum nema 11″ ódýrustu. Allt í allt er þetta gríðarlega þétt uppfærsla sem skilar mun meiri krafti til notandans án þess að fórna rafhlöðuendingu en rafhlaðan endist sem fyrr í 5 tíma (11″) og 7 tíma (13″). Nú er Macbook Air komin á par við stærri systkini sín 13″, 15″ og 17″ MacBook Air og inniheldur nú hið dularfulla Thunderbolt tengi. Nánar um það í tengslum við Cinema Display uppfærsluna hér að neðan.

Tölvurnar eru væntanlegar um miðjan ágúst en sem fyrr býður Macland upp á forpöntun enda búist við mikilli eftirspurn eftir þessari glæsilegu græju.

Mac Mini hoppaði einnig upp um annan gír í dag með uppfærslu í i5 og i7 (sérpöntun) örgjörva. Geisladrifið fékk að fjúka eins og sjá má á þessari mynd.

Mac Mini er nú orðinn mun öflugri og er orðinn brúklegur í allt frá því að vera sjónvarpstölva upp í að klippa HD myndefni. Mac Mini + Apple Cinema skjárinn er farið að líta út eins og ansi bitastætt tilboð. 2GB vinnsluminni heldur sér í ódýrari týpunni en 4GB fylgja þeirri dýrari ásamt því að hún hefur mun betra skjákort. Macland býður að sjálfsögðu upp á forpöntun á Mac Mini og miðað við þann biðlista sem er hjá okkur í dag þá er ekki annað hægt en að mæla með því að áhugasamir skelli sér á eintak í forpöntun hér. Þess má einnig geta að Mac Mini inniheldur Thunderbolt tengið góða sem við förum betur í í tengslum við uppfærsluna á 27″ Cinema skjánum.

Stuttlega að iWork sem einnig fékk andlitslyftingu í dag. iWork ’09 hefur verið óbreytt að mestu leyti í 2 ár en nú er það orðið að fullu samhæft við Lion og styður Resume, Versions og aðra flotta fítusa sem munu væntanlega hjálpa notendum iWork enn meira að halda utan um vinnu sína í Keynote, Pages og Numbers. iWork er eingöngu fáanlegt í dag í gegnum App Store og mælum við hiklaust með því eftir þessa uppfærslu.

Svo að lokum, 27″ Apple Cinema Display. Holy moly, hvað er annað hægt að segja um þessa uppfærslu. 27″ skjárinn er orðinn að iMac í raun og hin fullkomna “docking station” fyrir alla makka með Thunderbolt tengi. Nú þarf eingöngu að tengja MagSafe hleðslutækið og Thunderbolt kapalinn beint úr skjánum í fartölvuna eða Mac Mini-inn og þá fær tölvan fullan aðgang að öllum portum aftan á skjánum en þau eru núna :

  • þrjú USB 2.0
  • Firewire 800 port
  • Thunderbolt
  • Gigabit Ethernet port

Svo má ekki gleyma því að skjárinn er með FaceTime myndavél þannig að Mac Mini getur tekið þátt í Photobooth / Facetime stemmingunni sem aðrar tölvur geta í dag. Búast má við Mac Pro með Thunderbolt tengi á næstunni en það er eina tölvan sem Apple framleiðir sem á eftir að nálgast nútímann meira.

Auðvitað er hægt að forpanta hann hjá Macland hér.

Fyrir nánari upplýsingar um hverja vöru fyrir sig bendum við á vef Apple en þar er að finna greinargóðar lýsingar á öllum þeim uppfærslum sem rætt er um hér að ofan. Einnig erum við gríðarlega hressir í Maclandinu góða og fögnum hverjum þeim sem leggur leið sína í litlu búðina okkar og hvetjum við ykkur til að kíkja við og sjá, spyrja og fræðast um allt það sem Apple er að gera í dag.

Mælum einnig með þessari yfirferð frá CultofMac. Hrikalega yfirgripsmikið og flott.

Sjáumst!



Stebbi Jobb er allur að hressast

Þann 6.júní næstkomandi kl. 10:00 að staðartíma í Kaliforníu mun Steve Jobs kynna iOS5, Lion (OSX10.7) og iCloud. Kynningin verður ekki í beinni útsendingu sem fyrr en verður væntanlega komin á vef Apple fyrir þyrsta Apple lúða (og alla hina) um kl. 22 sama kvöld.

iOS5 er ekki vitað mikið um enn sem komið er því miður, en mikil tilhlökkun er varðandi hvaða nýjungar koma fram. Helst hefur verið rætt um nýtt tilkynningakerfi (notifications) en kerfið í dag er gjörsamlega óþolandi og virkar mjög illa þegar fleiri en 1 tilkynning kemur á skjáinn. Þetta gerir það að verkum að Missed Call, SMS og Calendar áminning hverfa allar þegar tæki er aflæst. Vonir standa til að þetta verði lagað í iOS5. Að okkar mati er iOS5 ekki að fara að koma í næstu viku. Líklegra er að forritarar fái prufuútgáfu og að iOS5 komi út í haust.

Lion er mikið vitað um enda hefur opinber prufuútgáfa verið í notkun í töluverðan tíma. Stýrikerfið er nú orðið frekar stöðugt og styttist að okkar mati í að lokaútgáfan verði klár. Að okkar mati er líklegt að Lion komi út 6.júní og verði aðgengilegt í gegnum Mac App Store og auðvitað í verslunum um allan heim.

Svo er það iCloud. Lítið er vitað um nákvæmlega hvað verður í iCloud, en líklegt er að iTunes muni verða að svokallaðri “Cloud”þjónustu sem þýðir að notendur geti þá geymt tónlistina og myndböndin sín á netþjónum Apple og spilað hvar sem þeir eru í heiminum svo lengi sem þeir eru í netsambandi. Líklegt má einnig telja að Apple komi með “DropBox killer” sem væri þá settur til höfuðs DropBox sem nýtur gríðarlegra vinsælda hjá tölvunotendum.

Það er því ljóst að 6.júní er dagur sem allir vilja sitja límdir við tölvuskjáinn.

Við verðum á vaktinni og látum ykkur vita um leið og eitthvað nýtt er að frétta.

Hér er fréttatilkynningin frá Apple í heild sinni.

Apple® CEO Steve Jobs and a team of Apple executives will kick off the company’s annual Worldwide Developers Conference (WWDC) with a keynote address on Monday, June 6 at 10:00 a.m. At the keynote, Apple will unveil its next generation software – Lion, the eighth major release of Mac OS® X; iOS 5, the next version of Apple’s advanced mobile operating system which powers the iPad®, iPhone® and iPod touch®; and iCloud®, Apple’s upcoming cloud services offering.


Data-Doubler / Tvöfaldarinn virkar í flestar tölvur framleiddar frá árinu 2006

Við hjá Macland erum mjög hrifin af því að uppfæra eldri tölvur og gleðja viðskiptavini með ýmsum uppfærslum.

Nú er SSD tæknin komin á nokkurt skrið og vinsælasta uppfærslan hjá okkur felst í því að setja SSD “harðan disk” í tölvuna ásamt því að bæta við öðrum disk þar sem geisladrifið var áður.

Þetta þýðir að eldri tölvur, t.d. MacBook Pro frá 2006 eða iMac frá 2007 umbreytast úr því að vera ágætist vinnuhestar yfir í sportbíl á sterum.

Aðgerðin er einföld og felst í eftirtöldu :

  • SSD diskur keyrir stýrikerfið + forrit
  • Auka harði diskurinn geymir öll gögn (iPhoto, iTunes, Documents og svo frv.)
  • Geisladrifið er fjarlægt og sett í hýsingu sem tengd er með USB

Kostnaður við svona breytingu er eftirfarandi :

  • Data-Doubler / Tvöfaldarinn – 14.990 (lækkað verð, var áður 19.990)
  • Vinna – 13.500
  • SSD diskur – frá 39.990

Ýmsar útfærslur eru til af þessari uppfærslu en sú algengasta er að viðskiptavinur kaupir SSD + Tvöfaldarann og nýtir t.d. harða diskinn sem fyrir er í tölvunni.

Dæmi er uppfærsla sem framkvæmd var um daginn hjá okkur fyrir viðskiptavin með 2009 árgerð af iMac 27″. Viðkomandi var orðinn frekar ósáttur með hversu hæg tölvan var orðin og ákvað að skella sér á SSD + tvöfaldara til að þurfa ekki að uppfæra í nýja tölvu með tilheyrandi kostnaði.

Svona leit sú uppfærsla út kostnaðarlega séð :

  • SSD – 39.990
  • Tvöfaldari – 14.990
  • Vinna – 13.500

Samtals : 68.480

Niðurstaðan var brakandi fersk og hröð iMac tölva sem viðkomandi hafði enga grun um að gæti staðið sig svona vel. 120GB SSD + 2TB harður diskur og tölvan hreinlega öskraði úr hraða.

Svona uppfærsla hentar jafnt fyrir Mac Pro, MacBook Pro, MacBook, Mac Mini eða iMac enda um að ræða gæðavöru frá vinum okkar hjá Macsales.com

Hafðu samband á verslun@macland.is og við gerum tilboð í uppfærsluna eins og þér hentar.

Lausnin er nefnilega ekki alltaf að kaupa bara nýja tölvu. ;)



Í dag kynnti Apple uppfærðan iMac en sterkur orðrómur hafði verið uppi í nokkrar vikur um að eitthvað væri í bígerð. Ytra útlit iMac breytist ekkert en það sem er á bak við tjöldin fær væna uppfærslu.

  • Nýir örgjörvar (2.7GHz Quad-Core i5 upp í 3.4GHz Quad-Core i5)
  • Hægt er að sérpanta Quad-Core i7 örgjörva
  • Thunderbolt tengi eins og er á MacBook Pro
  • 1 Thunderbolt tengi á 21″ | 2 Thunderbolt tengi á 27″
  • FaceTime HD myndavél
  • Allt að 3x betri skjákort

Sama verð er á tölvunum í USA ásamt því að þær hafa allar áfram 4GB í vinnsluminni. IPS skjárinn sem allir elska heldur áfram að lýsa okkur veginn ásamt SD kortalesara. Svo fylgir þráðlaust Apple lyklaborð og Magic Mouse að sjálfsögðu áfram.

Tryggðu þér eintak úr fyrstu sendingum með því að forpanta hér.



Fengum í dag á lager vörur frá Macsales. Við hefjum leik með :

  • 115GB SSD frá OWC – verð 39.990
  • Rafhlöður í MacBook, MacBook Pro – verð 19.990
    (passar í tölvur frá 2006-2008)
  • Data-Doubler (Tvöfaldari fyrir fartölvur) – verð 19.990

15″ MacBook Pro rafhlöðurnar kláruðust samdægurs, ný sending er lögð af stað.

Frábærar vörur á flottu verði. Hafðu samband á verslun@macland.is