Einfalt og þægilegt

John’s Phone er stórskemmtilegur sími sem þú eiginlega verður að skoða til að upplifa snilldina sem hann er. Við keyptum inn svona eintak fyrir 3 mánuðum og höfum prófað hann út í gegn. Reynslan var svo góð að við ákváðum að panta hann inn og verður Macland eina fyrirtækið á landinu sem selur þessa yndislegu græju.

Ætlunin var að kynna símann nú á föstudaginn 25.mars en hugsanlega hefði sú kynning fallið í skuggann af iPad 2. Hugsanlega….

Það dregur þó ekki úr gæðum og snilld símans að iPad 2 hefði skyggt á hann enda höfðu viðskiptavinir Macland gríðarlega gaman af því að handleika sýningareintakið okkar núna á föstudag.

John’s Phone er einfaldasti farsími í heimi.
John’s Phone gerir þér kleift að hringja símtöl eða svara í símann hvar sem er í heiminum. Ekkert aukadót, engir óþarfa fítusar eins og myndavél, SMS eða risastórt úrval hringitóna. John’s Phone snýst um eitt, einfaldleika.

John’s Phone þarfnast ekki útskýringar.
Notaðu símann til að hringja og leggja á, hækka hljóðið í viðmælanda þínum, læsa honum eða opna hann. Lífið gæti ekki verið einfaldara. Hraðvalið (speed-dial) sem gerir notandanum kleift að vista allt að 9 númer í hraðvali gerir hann að fullkomnum síma fyrir börn og þá sem vilja/þurfa mjög einfaldan farsíma.

John’s Phone er með stóra og þægilega hnappa. Bakhlið símans er með flipa sem inniheldur pappírs símaskrá og penna, sem gerir símann fullkominn fyrir notendur af eldri kynslóðinni.

Símanum fylgir einnig handfrjáls búnaður og að sjálfsögðu hleðslutæki, bæði fyrir tölvu og fyrir rafmagnstengi.

John’s Phone er hannaður og framleiddur af John Doe Amsterdam og er til í 5 litum

Einnig verður Macland með til sölu sérstaka “limited edition” útgáfu af John’s Phone sem er gulllituð og má sjá myndir af gullútgáfunni ásamt öllum hinum litunum í gallerýinu hér að neðan.

Verð á hvítum, brúnum, bleikum, svörtum og grænum er 14.990. “Limited edition” gullútgáfan kostar 17.990

Endilega kíkið við á Klapparstíg 30 og skoðið þennan frábæra síma sem gæti hugsanlega ekki verið staðsettur lengra frá iPhone 4 í tæknikúrfunni.




Hæ, og já sælir!

Nú getum við loksins kynnt til leiks spjallborðið okkar sem ætti að gleðja og kæta Maclendinga nær og fjær.

Tvær leiðir eru til að skrá sig á spjallborðið.

1. Nota Facebook aðgang (mælum með þessu enda gríðarlega einfalt og fljótlegt)
2. Skrá sig beint á spjallið óháð Facebook

Flestir flokkar eru komnir inn en við munum líklega breyta þeim eitthvað og bæta á næstunni ásamt því að íslenska a.m.k. hluta af spjallborðinu.

Allar ábendingar eru gríðarlega vel þegnar og við hlökkum til að sjá og heyra frá ykkur.



Já hæ… viltu ekki skrá þig á skemmtilegasta póstlista í heiminum? Það held ég nú.

Meðlimir á póstlistanum okkar fá send tilboð og upplýsingar á undan öðrum ásamt því að Macland mun bjóða upp á sértilboð til meðlima póstlistans.

Ekki hika við að skrá þig… kostar ekkert og þú verður gríðarlega hress um leið og skráningu lýkur, annars færðu endurgreitt samstundis.

Smelltu hér til að skrá þig.

Að vera á póstlista er góð skemmtun