Starfsmenn Macland voru farnir að sakna vina sinna svo mikið að ákveðið var að hafa opið á laugardögum frá og með 9.apríl.
Opið verður frá 12-16 og góða skapið verður að sjálfsögðu með í för. Sjáumst hress á fyrstu laugardagsopnun Macland.
Ps. kíkið á John’s Phone… kemur okkur reyndar ekki á óvart hvað það selst mikið af þessu frábæra tæki.
Pps. við ætlum að gefa John’s Phone þegar við náum 8.000 LIKE á Facebook síðuna okkar.
Happy saturday
Hæ, og já sælir!
Nú getum við loksins kynnt til leiks spjallborðið okkar sem ætti að gleðja og kæta Maclendinga nær og fjær.
Tvær leiðir eru til að skrá sig á spjallborðið.
1. Nota Facebook aðgang (mælum með þessu enda gríðarlega einfalt og fljótlegt)
2. Skrá sig beint á spjallið óháð Facebook
Flestir flokkar eru komnir inn en við munum líklega breyta þeim eitthvað og bæta á næstunni ásamt því að íslenska a.m.k. hluta af spjallborðinu.
Allar ábendingar eru gríðarlega vel þegnar og við hlökkum til að sjá og heyra frá ykkur.
Hvað ætli við fáum að sjá. iPhone 5 og MacBook Pro með 32GB í vinnsluminni og 4Ghz örgjörva?
Líklega ekki…. en mjög líklega ný MacBook Air enda er hún farin að lykta illa, aðallega af vanrækslu af hálfu Apple. Líklega verður hún með minni skjá.
Gaman að sjá að Apple er ekki búið að gleyma því að fólk notar jú tölvur til að uppfæra iOS tækin sín með t.d. tónlist, skjölum og bíómyndum. Makkinn hefur fengið gríðarlega sífellt minni athygli frá Apple, allt frá útgáfu iPhone og svo versnaði þetta enn meira þegar iPad kom til skjalanna.
Ekki má gleyma iLife ’09 sem er komið ansi mikið til ára sinna og mikil þörf á nýjungum á þeim bæ.
Við getum a.m.k. ekki beðið eftir þessari kynningu og minnum ykkur á að merkja við 20.október í dagatalinu
Hinir stórkostlegu Apple nördar á 9to5mac.com skrifa að Apple muni mögulega kynna á morgun til leiks nýjar vörur.
Þar á meðal séu uppfærslur á :
- iMac
- Mac Pro
- Apple skjánum
- Nýja “utanáliggjandi” fartölvumúsin (veit ekki um betra orð til að lýsa því)
Mac Pro hefur ekki fengið uppfærslu í dágóðan tíma þannig að sá orðrómur er nú ekki nýr af nálinni en það sama má segja um Apple skjáina. Vélbúnaðurinn í Mac Pro er farinn að öskra á endurnýjun og vonum við hjá Macland innilega að breytingin verði svakaleg.
Líklegt er að hönnunin á iMac breytist ekki mikið enda er núverandi útlit frekar nýlegt og vel heppnað í alla staði. Uppfærsla eða “refresh” á íhlutum er mun líklegri.
Apple skjáir hafa verið í töluverðu limbói í langan tíma, enda 23″ og 30″ staðið í stað í mjög langan tíma. 24″ skjárinn er nýrri en er þó ekki samanburðarhæfur við þann stórkostlega skjá sem 21″ og 27″ iMac hefur að geyma. Þannig að líklegt er að nýir skjáir verði kynntir í stærðum 21″ og 27″ á morgun. Vonandi einn í 30″+ stærðinni.
Svo er það þetta með nýju “utanáliggjandi” fartölvumúsina… Magic Trackpad á hún víst að heita. Það verður virkilega gaman að sjá hvernig Apple sannfærir okkur um hvað á að nota þessa vöru í. Verð að viðurkenna að ég skil hana ekki alveg, en væntanlega verð ég með þeim fyrstu sem “verð” að eignast hana.
Það er a.m.k. þriðjudagur á morgun, annað er ekki staðfest, en við fylgjumst spennt með hvað gerist á morgun
Nú flýgur sá orðrómur hátt að Apple sé með í undirbúningi vöru sem líklega allir Apple nördar munu slefa yfir. Hver myndi ekki vilja hafa sjónvarpið í stofunni með innbyggðri tölvu frá Apple?
Steve Jobs sagði árið 2008 að “engum hefði tekist að sameina internetið, bíómyndir og sjónvarp í eitt tæki”. Nú virðist vera sem Apple ætli að gera alvöru úr þessari hugmynd með því að umbreyta AppleTV hugbúnaðinum og eru að ráða sérfræðinga á sviði sjónvarpsafþreyingar. Þetta myndi leiða til nýrrar vöru sem myndi notast við nýja iOS stýrikerfið sem iPhone, iPad og iPod Touch keyra.
New York Times greindu frá því nú seint í júní að unnið væri að gerð vörunnar útfrá algjörlega nýjum vinkli og það sem AppleTV hefur gert hingað til yrði sett í reynslubankann, en ekki notað frekar.
Sé þetta rétt myndi Apple ná sér í skemmtilega stöðu með því að bjóða HDTV “sjónvarp” og talið er að þessi vara muni birtast á næstu 2-4 árum. Einnig fylgdi pælingum New York Times sú hugmynd að þessi vara tæki við af afruglara, HDTV sjónvarpinu, Blu-Ray spilaranum og stafræna upptökutækinu. Verðið…. 1.999$, alls ekki slæmt.
iOS myndi gera eigendum þessa ímyndaða tækis möguleikann á að streyma til sín öllum þeim sjónvarpsþáttum og bíómyndum sem hugurinn girndist. Nú þegar er slíkt framboð mjög aðgengilegt, en allt í sitthvoru lagi. Apple eru líklega eina fyrirtækið í dag sem gæti sameinað þetta allt í eitt tæki, eina fjarstýringu.
Eins og margt annað sem við skrifum hér þá er þetta orðrómur en það er víst enginn reykur án elds….




