Já langur listi! Nú styttist í að þessar vörur komi aftur á lager hjá okkur og því vildum við láta ykkur vita svo þið gætuð tryggt ykkur eintök í tæka tíð.
Við vitum ekki enn hversu mörg eintök koma enda eru þetta allt vörur sem voru nýlega kynntar, fyrir utan iMac.
Magn pantana á MacBook Air, Mac Mini og Cinema Display hafa komið okkur skemmtilega á óvart og því miður hefur ekki komið nóg af iMac til landsins til að svara eftirspurn.
Svo skellið ykkur á viðkomandi vörusíður og pantið ykkur brakandi fersk eintök af þessum stórskemmtilegu græjum. Við höfum svo samband við ykkur þegar pantanir koma í hús.
Eigum von á heilum helling af Macsales vörum strax eftir helgi. Töskur, rafhlöður í Apple fartölvur frá 2006-2008, Minidisplayport í Minidisplayport og margt fleira.
Erum einnig með frábært úrval af “Quad-interface” hýsingum bæði fyrir 1 og 2 diska. E-SATA, FW800, FW400 og USB2 allt í sömu hýsingunni. Millistykki fyrir MiniDisplay yfir í HDMI, VGA og DVI. iPhone, iPad og iPod Touch aukahluti, SSD diska, vinnsluminni og svo margt margt fleira.
Einnig er vert að minnast á “Data-Doubler” eða Tvöfaldarann sem nýtur gríðarlegra vinsælda hjá viðskiptavinum Macland. Höfum gríðarlega reynslu í því að skipta út geisladrifum í Apple fartölvum og iMac setja auka harðan disk í staðinn. Endilega hafið samband við okkur á verslun@macland.is og fáið tilboð í uppfærslu á gamla jálkinn eða tölvuna sem þú tímir ekki að selja til að fá þér nýja.
Þú finnur hvergi meira úrval af vörum frá Macsales á Íslandi.
ps. erum að vinna í vefverslun og getum þá vonandi loksins komið þessum vörum almennilega á netið en við tökum að sjálfsögðu fagnandi á móti ykkur í versluninni okkar á Klapparstíg 30 með urmul af Macsales dóti.
John’s Phone er stórskemmtilegur sími sem þú eiginlega verður að skoða til að upplifa snilldina sem hann er. Við keyptum inn svona eintak fyrir 3 mánuðum og höfum prófað hann út í gegn. Reynslan var svo góð að við ákváðum að panta hann inn og verður Macland eina fyrirtækið á landinu sem selur þessa yndislegu græju.
Ætlunin var að kynna símann nú á föstudaginn 25.mars en hugsanlega hefði sú kynning fallið í skuggann af iPad 2. Hugsanlega….
Það dregur þó ekki úr gæðum og snilld símans að iPad 2 hefði skyggt á hann enda höfðu viðskiptavinir Macland gríðarlega gaman af því að handleika sýningareintakið okkar núna á föstudag.
John’s Phone er einfaldasti farsími í heimi.
John’s Phone gerir þér kleift að hringja símtöl eða svara í símann hvar sem er í heiminum. Ekkert aukadót, engir óþarfa fítusar eins og myndavél, SMS eða risastórt úrval hringitóna. John’s Phone snýst um eitt, einfaldleika.
John’s Phone þarfnast ekki útskýringar.
Notaðu símann til að hringja og leggja á, hækka hljóðið í viðmælanda þínum, læsa honum eða opna hann. Lífið gæti ekki verið einfaldara. Hraðvalið (speed-dial) sem gerir notandanum kleift að vista allt að 9 númer í hraðvali gerir hann að fullkomnum síma fyrir börn og þá sem vilja/þurfa mjög einfaldan farsíma.
John’s Phone er með stóra og þægilega hnappa. Bakhlið símans er með flipa sem inniheldur pappírs símaskrá og penna, sem gerir símann fullkominn fyrir notendur af eldri kynslóðinni.
Símanum fylgir einnig handfrjáls búnaður og að sjálfsögðu hleðslutæki, bæði fyrir tölvu og fyrir rafmagnstengi.
John’s Phone er hannaður og framleiddur af John Doe Amsterdam og er til í 5 litum
- Hvítur (John’s Phone Snow)
- Brúnn (John’s Phone Tree)
- Bleikur (John’s Phone Sweet)
- Svartur (John’s Phone Business)
- Grænn (John’s Phone Grass)
Einnig verður Macland með til sölu sérstaka “limited edition” útgáfu af John’s Phone sem er gulllituð og má sjá myndir af gullútgáfunni ásamt öllum hinum litunum í gallerýinu hér að neðan.
Verð á hvítum, brúnum, bleikum, svörtum og grænum er 14.990. “Limited edition” gullútgáfan kostar 17.990
Endilega kíkið við á Klapparstíg 30 og skoðið þennan frábæra síma sem gæti hugsanlega ekki verið staðsettur lengra frá iPhone 4 í tæknikúrfunni.
Vinir okkar hjá Sport.is hafa tekið saman góða umfjöllun um Pocket Penguin veskið/hulstrið sem við seljum. Sigrún Baldursdóttir, fatahönnuður, hefur selt Pocket Penguin í ýmsum sérverslunum undanfarin ár og við erum stolt af því að selja þessa frábæru vöru.
Pocket Penguin kostar aðeins 6.990 og er úr ekta leðri og handsaumað af Sigrúnu.
Við erum að hringja út forpantanir og það lítur allt út fyrir að allir sem pöntuðu fái tölvu fyrir helgi sem eru frábærar fréttir. Sýningareintakið okkar mjálmar úr hamingju enda er tölvan hæstánægð að fá að sýna sig og sjá aðra í Sirkus húsinu.
Virkilega gaman að sjá Apple senda Macbook Pro svona fljótt til Íslands þar sem eingöngu 2 vikur eru síðan varan var kynnt í Bandaríkjunum. Forpöntun á 13″ MacBook Pro i5 útgáfunni er því lokið og hún er komin í venjulegt pöntunarferli.
Hægt er að panta í gegnum verslun@macland.is, í síma 580-7500 eða kíkja á okkur á Klapparstíg 30.
Nú bíðum við eftir að fá 13″ i7 týpuna ásamt 15″ og 17″ útgáfunum. Forpantanir á þeim tölvum er enn í fullum gangi hér.
























