Það er alltaf gaman að sjá meistara Steve Jobs tala og hér gefst gott tækifæri til að heyra hans skoðun beint í æð á þeim hlutum sem eru hvað mest áberandi núna.
svona í samhengi við póstinn okkar áðan um að Apple sé orðið verðmætara fyrirtæki en Microsoft.
Ef þú hefur ekki séð þessi myndbönd, sestu niður, taktu 10 mínútur frá og hlæðu.
Bill Gates horfir niður á Jobs….
Steve Ballmer lætur eins og fífl
Sá merki atburður átti sér stað í vikunni þegar verðmæti Apple sem fyrirtækis fór í fyrsta sinn fram úr verðmæti Microsoft. Fyrirtækin hafa eldað grátt silfur saman í næstum 30 ár en nú í fyrsta sinn getur Apple horft niður á Microsoft á listanum yfir verðmætustu fyrirtæki Bandaríkjanna.
Apple hefur verið á svakalegu flugi síðasta árið enda hefur verðmæti fyrirtækisins tvöfaldast á þeim tíma. Þegar markaðir í Bandaríkjunum lokuðu kl. 16:00 að staðartíma í New York var Apple metið á 222.5 milljarða dollara og Microsoft á 219.53 milljarða dollara.
Eina fyrirtækið sem Apple á eftir að yfirtaka er olíufyrirtækið Exxon sem er metið á 278 milljarða dollara. Eftir að Apple hoppaði yfir Walmart í síðasta mánuði þá var bara spurning um hvenær Microsoft yrði næsta fórnarlamb Apple.
Það skrýtna við þetta allt saman er að þó Apple sé vissulega að hoppa yfir Microsoft hvað varðar virði fyrirtækjanna, þá hefur mikið að segja að virði Microsoft hefur dregist saman um 40 milljarða $ síðustu 60 dagana. Á sama tíma hefur virði Apple vaxið um 10 milljarða $.
En eins og New York Times segja þá er þetta alveg ótrúleg breyting á einu fyrirtæki á jafn stuttum tíma.
Alls ekki slæmt ef hugsað er út í það að Apple var við dauðans dyr á árunum 1995-1999.
Nú er bara spurning hvort Apple verði næsta Microsoft og hugsi meira um að mjólka kúnnana sína í stað þess að hlusta á þá.
Þeir sem ekki nota Adium til að eiga samskipti við vini sína á MSN geta nú sótt sér MSN Messenger 8, reyndar í beta útgáfu. Þessi útgáfa gerir notendum kleift að notast við Video-Chat í fyrsta skipti á makkanum, í gegnum MSN.
iChat, spjallforritið frá Apple, hefur haft þennan möguleika í mörg ár en vegna þess hversu fáir nota þá þjónustu hefur skortur á þessum möguleika í MSN Messenger verið mikill ókostur fyrir Mac notendur.
Smellið hér til að sækja MSN Messenger 8 útgáfuna (innlent niðurhal)
Já, strákarnir hjá BoyGeniusReport.com eru ekki að skafa af því og birtu myndir af Microsoft Office 11 fyrir mac.




