Eigum von á heilum helling af Macsales vörum strax eftir helgi. Töskur, rafhlöður í Apple fartölvur frá 2006-2008, Minidisplayport í Minidisplayport og margt fleira.
Erum einnig með frábært úrval af “Quad-interface” hýsingum bæði fyrir 1 og 2 diska. E-SATA, FW800, FW400 og USB2 allt í sömu hýsingunni. Millistykki fyrir MiniDisplay yfir í HDMI, VGA og DVI. iPhone, iPad og iPod Touch aukahluti, SSD diska, vinnsluminni og svo margt margt fleira.
Einnig er vert að minnast á “Data-Doubler” eða Tvöfaldarann sem nýtur gríðarlegra vinsælda hjá viðskiptavinum Macland. Höfum gríðarlega reynslu í því að skipta út geisladrifum í Apple fartölvum og iMac setja auka harðan disk í staðinn. Endilega hafið samband við okkur á verslun@macland.is og fáið tilboð í uppfærslu á gamla jálkinn eða tölvuna sem þú tímir ekki að selja til að fá þér nýja.
Þú finnur hvergi meira úrval af vörum frá Macsales á Íslandi.
ps. erum að vinna í vefverslun og getum þá vonandi loksins komið þessum vörum almennilega á netið en við tökum að sjálfsögðu fagnandi á móti ykkur í versluninni okkar á Klapparstíg 30 með urmul af Macsales dóti.
Fengum í dag sendingu af
8GB uppfærslu fyrir nýjustu MacBook Pro og iMac
verð – 23.980
Data-doubler (tvöfaldarinn góði)
lækkað verð – 16.990
Rafhlaða í 15″ MacBook Pro
verð – 19.990
Kíkið á okkur á Klapparstíg 30 eða hafið samband í síma 580-7500 eða á verslun@macland.is
Fengum í dag á lager vörur frá Macsales. Við hefjum leik með :
- 115GB SSD frá OWC – verð 39.990
- Rafhlöður í MacBook, MacBook Pro – verð 19.990
(passar í tölvur frá 2006-2008) - Data-Doubler (Tvöfaldari fyrir fartölvur) – verð 19.990
15″ MacBook Pro rafhlöðurnar kláruðust samdægurs, ný sending er lögð af stað.
Frábærar vörur á flottu verði. Hafðu samband á verslun@macland.is
Fartölvur hafa oftast eingöngu eina rauf fyrir harðan disk. Með Tvöfaldaranum frá Macsales er nú hægt að hafa 2 diska í einni og sömu fartölvunni. Nú geturðu sett allt að 750GB harðan disk í fartölvuna eða SSD (solid state/flash drif) til að gera hana enn hraðari en þú hefðir getað ímyndað þér.
Tvöfaldarinn kemur í stað geisladrifsins í tölvunni og allir 2.5″ SATA harðir diskar (9.5mm á hæð hámark) passa í Tvöfaldarann. Í dag er hægt að nálgast nánast allan hugbúnað í gegnum internetið en ef þú vilt halda geisladrifinu þá eru hagkvæmar lausnir til hjá t.d. Tölvutek.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig er hægt að nota Tvöfaldarann:
- Bæta við auka disk í tölvuna til að auka plássið og nota 2 diska í sömu fartölvunni.
- Bæta við auka disk í tölvuna og stilla þá saman til að mynda eitt stórt drif (SPAN)
- Setja 2 eins diska í tölvuna og stilla þá sem eitt RAID-0 Stripe drif.
- Nota aukadrifið sem Time Machine afritunardisk.
- Nota aukadrifið algjörlega undir Windows stýrikerfið.
Tvöfaldarinn býður upp á mikla möguleika bæði fyrir glænýjar tölvur sem og t.d. tölvur frá 2009 sem þurfa að fá smá ást og umhyggju.
Við höfum sett Data doubler í þó nokkuð af tölvum fyrir viðskiptavini en algengasta útfærslan er á þá leið að stýrikerfið er sett upp á SSD disk sem inniheldur þá stýrikerfi + forrit. Svo er settur 500GB eða 750GB harður diskur í Tvöfaldarann til að halda utan um öll gögn, t.d. Home möppuna (Documents, iPhoto, iTunes) og svo frv.
Macland er með Tvöfaldarann á lager á aðeins 19.990. Ísetning kostar 9.000.
Heildarkostnaður við algengustu uppfærsluna væri á þessa leið.
- 2 tímar á verkstæði – 2 * 9000 = 18.000
- Tvöfaldarinn – 19.990
- 120GB SSD diskur – 44.990
- 500GB HDD diskur – 12.990
Samtals : 95.970
Þetta er dágóð summa, en þegar horft er á að nýjar 15″ MacBook Pro fartölvur kosta yfir 300.000 þá er þetta ekki mikið í þeim samanburði, sérstaklega þegar horft er á hraðaaukninguna sem SSD uppfærslan gerir ein og sér.
Endilega kíkið við í verslunina okkar og skoðið sýningareintak af 13″ MacBook Pro með 120GB SSD, 500GB HDD og Tvöfaldaranum.





