Kæru Maclendingar. Hér er smá listi sem við tókum saman yfir þær vörur sem okkur finnst mest spennandi um þessar mundir. Athugið að listinn er frekar langur, þannig að ekki hika við að “skrolla” eða “skruna” niður.
Einnig munum við bæta við listann fram að jólum.
iPhone 4S hefur lækkað hratt í verði og er nú kominn undir hundrað þúsund krónur!
Mikið úrval aukahluta fyrir iPhone 4 og iPhone 4S á lager.
Verð nú aðeins 99.990
__________________________________________________________________
Nýr iPod Nano var kynntur seint í haust. Fjölmargir fallegir litir og glæný hönnun gera þessa græju að mest spennandi iPod Nano hingað til.
Skoðaðu litina í vefverslun okkar.
Verð 39.990
__________________________________________________________________
Ef þú vilt eignast fyrstu Apple vöruna þína þá er Apple TV málið.
Apple TV vinnur undursamlega vel með iPad, iPhone, iPod, makkanum þínum og jafnvel Windows tölvunni þinni (þótt ótrúlegt sé). Leigðu þér/kauptu myndir og þætti. Netflix, Hulu. Playmo.tv. Listinn yfir möguleika er endalaus.
__________________________________________________________________
Við vorum ekki lengi að sannfærast um gæði dönsku heyrnartólanna frá AIAIAI.
Falleg hönnun og enn betri hljómburður. Til í öllum stærðum og gerðum… og jú öllum litum.
Verð frá 7.990
__________________________________________________________________
Það er sagt að á jólum fái nú allir eitthvað fallegt. En ef þú ert í basli með að finna réttu gjöfina þá eru fallegu gjafabréfin okkar tilvalin gjöf.
Snillingarnir hjá Undralandinu og Reykjavík Letterpress hönnuðu og prentuðu þessi fallegu gjafabréf fyrir okkur, og jú ykkur auðvitað.
Þú velur upphæðina!
__________________________________________________________________
Lacie Rikiki flakkari/afritunardiskur
Ekkert er meira súrt en að horfa framan í viðskiptavin þegar svarið er “Nei” við spurningunni : “Áttu einhver öryggisafrit af gögnunum þínum”.
Leystu það vandamál með nettum og léttum flakkara. Þarf ekki aukarafmagn.
Eigum allar stærðir af 3G svörtum. Erum einnig með 64GB 3G svartan og svo 32GB WiFi svartan.
Opið til 16 í dag og við erum við síma 580-7500 eða verslun@macland.is
Þessi yndislega græja er komin í hús hér hjá okkur í Macland.
Við verðum með bæði hvítan og svartan iPad 2 til sýnis þannig að allir geta fengið að sjá iPad 2 í allri sinni dýrð.
Því miður fengum við ekki nema brot af þeim forpöntunum sem búið var að panta. Við höfum nú þegar haft samband við alla sem fá iPad 2 úr fyrstu sendingu.
Kíkið endilega við kl. 17:00 þar sem við munum svifta hulunni af 2 glæsilegum sýningareintökum og bjóðum upp á léttan Tuborg Classic í tilefni dagsins.
Sjáumst hress

Jú að sjálfsögðu verður Macland með iPad 2 til sölu strax og hann berst til landsins. Þú getur forpantað þér eintak strax í dag hér á vefnum okkar.
Steve Jobs mætti á sviðið í dag og kynnti iPad 2 til leiks. Það sem helst aðgreinir upprunalega iPad og iPad 2 er :
Continue reading »








