Nú eru MacBook Pro tölvurnar komnar í eðlilegt ferli og forpöntun því lokið. Hægt er að panta þær með því að hafa samband við okkur á verslun@macland.is, hringja í 580-7500 eða hreinlega kíkja á okkur á Klapparstíg 30.

Forpöntun á iPad 2 er einnig lokið, en hann kemur til landsins núna á föstudaginn og verður til sýnis hjá okkur vonandi frá því kl. 10 sama dag.

Forpantanir á iPad verða afgreiddar í þeirri röð sem þær bárust og ekki er vitað hversu mikið magn kemur til landsins á föstudaginn eða hversu mikill tími líður þar til næsta sending kemur.

Við munum að sjálfsögðu láta ykkur vita þegar við fáum einhverjar upplýsingar.



Við erum að hringja út forpantanir og það lítur allt út fyrir að allir sem pöntuðu fái tölvu fyrir helgi sem eru frábærar fréttir. Sýningareintakið okkar mjálmar úr hamingju enda er tölvan hæstánægð að fá að sýna sig og sjá aðra í Sirkus húsinu.

Virkilega gaman að sjá Apple senda Macbook Pro svona fljótt til Íslands þar sem eingöngu 2 vikur eru síðan varan var kynnt í Bandaríkjunum. Forpöntun á 13″ MacBook Pro i5 útgáfunni er því lokið og hún er komin í venjulegt pöntunarferli.

Hægt er að panta í gegnum verslun@macland.is, í síma 580-7500 eða kíkja á okkur á Klapparstíg 30.

Nú bíðum við eftir að fá 13″ i7 týpuna ásamt 15″ og 17″ útgáfunum. Forpantanir á þeim tölvum er enn í fullum gangi hér.



Jæja kæru Maclendingar. Í gær, fimmtudaginn 24.febrúar, kynnti Apple nýja kynslóð af MacBook Pro fartölvum. Grunnurinn er sá sami, útlitið mjög svipað. Það sem er undir húddinu er hins vegar mjög spennandi.

13″ MacBook Pro fær í raun stærstu vélbúnaðaruppfærsluna þar sem hún er loksins komin á par með stærri systrum sínum 15″ og 17″ MacBook Pro. Allar þrjár útgáfurnar eru nú með Intel Dual-Core i5 eða Intel Quad-Core i7 örgjörvum sem gerir þær ansi bitastæðar.

Skjákortin í 15″ og 17″ eru sérstaklega áhugaverð en nú eru Apple búnir að losa sig við NVIDIA, a.m.k. í bili, og hafa fært sig yfirt til AMD. 1GB skjákort  í fartölvu er eitthvað sem við erum mjög spenntir fyrir, en dýrari útgáfan af 15″ og svo 17″ MacBook Pro hafa það skjákort. 13″ MacBook Pro er með Intel skjákort sem nýtir 384MB af vinnsluminninu.

Apple kynnti einnig til leiks Thunderbolt sem mun algerlega bylta því hvernig þú notar utanáliggjandi aukahluti svo sem flakkara og skjái. Allt notar þetta sama tengið, en hámarkshraðinn á Thunderbolt er 10 Gbps sem skilur FireWire 800 og USB 3 eftir í skugganum.

Engadget birtu stórskemmtilegt myndband í gær sem sýnir möguleika Thunderbolt á skemmtilegan máta.

Continue reading »




Flestir sem hafa þurft að endurnýja rafhlöðuna sína í MacBook eða MacBook Pro frá árunum 2006 eða yngri vita hversu erfitt það er að borga tæplega 30.000 krónur fyrir það eitt að geta notað fartölvuna sína á eðlilegan hátt.

Viðskiptavinur Macland benti okkur á frábæra vöru sem við höfum ákveðið að taka inn og selja. Trupower rafhlöður frá Fastmac. Verðið kemur á óvart en við erum að selja þær á 19.990 sem er mun betra en að borga 27.990 fyrir rafhlöður sem gera nákvæmlega það sama.

Við prófuðum svona rafhlöðu í 17″ MacBook Pro og vorum gríðarlega ánægðir með niðurstöðurnar. Rafhlaðan er algjörlega sambærileg þeirri sem Apple framleiðir. Macland mælir hiklaust með þessum rafhlöðum.

Við verðum með rafhlöður á lager fyrir eftirfarandi gerðir tölva :

Continue reading »



Apple kynntu nýjar MacBook Pro í dag, loksins myndu sumir segja, en það virðist vera sem þessi uppfærsla sé virkilega flott.

Helstu breytingar eru :

Continue reading »