Já langur listi! Nú styttist í að þessar vörur komi aftur á lager hjá okkur og því vildum við láta ykkur vita svo þið gætuð tryggt ykkur eintök í tæka tíð.
Við vitum ekki enn hversu mörg eintök koma enda eru þetta allt vörur sem voru nýlega kynntar, fyrir utan iMac.
Magn pantana á MacBook Air, Mac Mini og Cinema Display hafa komið okkur skemmtilega á óvart og því miður hefur ekki komið nóg af iMac til landsins til að svara eftirspurn.
Svo skellið ykkur á viðkomandi vörusíður og pantið ykkur brakandi fersk eintök af þessum stórskemmtilegu græjum. Við höfum svo samband við ykkur þegar pantanir koma í hús.
Þann 6.júní næstkomandi kl. 10:00 að staðartíma í Kaliforníu mun Steve Jobs kynna iOS5, Lion (OSX10.7) og iCloud. Kynningin verður ekki í beinni útsendingu sem fyrr en verður væntanlega komin á vef Apple fyrir þyrsta Apple lúða (og alla hina) um kl. 22 sama kvöld.
iOS5 er ekki vitað mikið um enn sem komið er því miður, en mikil tilhlökkun er varðandi hvaða nýjungar koma fram. Helst hefur verið rætt um nýtt tilkynningakerfi (notifications) en kerfið í dag er gjörsamlega óþolandi og virkar mjög illa þegar fleiri en 1 tilkynning kemur á skjáinn. Þetta gerir það að verkum að Missed Call, SMS og Calendar áminning hverfa allar þegar tæki er aflæst. Vonir standa til að þetta verði lagað í iOS5. Að okkar mati er iOS5 ekki að fara að koma í næstu viku. Líklegra er að forritarar fái prufuútgáfu og að iOS5 komi út í haust.
Lion er mikið vitað um enda hefur opinber prufuútgáfa verið í notkun í töluverðan tíma. Stýrikerfið er nú orðið frekar stöðugt og styttist að okkar mati í að lokaútgáfan verði klár. Að okkar mati er líklegt að Lion komi út 6.júní og verði aðgengilegt í gegnum Mac App Store og auðvitað í verslunum um allan heim.
Svo er það iCloud. Lítið er vitað um nákvæmlega hvað verður í iCloud, en líklegt er að iTunes muni verða að svokallaðri “Cloud”þjónustu sem þýðir að notendur geti þá geymt tónlistina og myndböndin sín á netþjónum Apple og spilað hvar sem þeir eru í heiminum svo lengi sem þeir eru í netsambandi. Líklegt má einnig telja að Apple komi með “DropBox killer” sem væri þá settur til höfuðs DropBox sem nýtur gríðarlegra vinsælda hjá tölvunotendum.
Það er því ljóst að 6.júní er dagur sem allir vilja sitja límdir við tölvuskjáinn.
Við verðum á vaktinni og látum ykkur vita um leið og eitthvað nýtt er að frétta.
Hér er fréttatilkynningin frá Apple í heild sinni.
Apple® CEO Steve Jobs and a team of Apple executives will kick off the company’s annual Worldwide Developers Conference (WWDC) with a keynote address on Monday, June 6 at 10:00 a.m. At the keynote, Apple will unveil its next generation software – Lion, the eighth major release of Mac OS® X; iOS 5, the next version of Apple’s advanced mobile operating system which powers the iPad®, iPhone® and iPod touch®; and iCloud®, Apple’s upcoming cloud services offering.Auðvitað miðað við höfðatölu þó
Sviss er í fyrsta sæti með Lúxemborg og Bandaríkin í öðru og þriðja sæti. Ísland er svo í fjórða sæti með rétt yfir 15% af markaðnum sem notar makka.
Þessar tölur eru fengnar frá Pingdom, fyrirtæki sem sérhæfir sig í eftirliti með uppitíma á netþjónum. Pingdom notar tölfræði sem fyrirtækið safnar úr heimsóknartölum frá meira en 3 milljón heimasíðum um allan heim.
Virkilega gaman að sjá loksins einhverjar tölur um markaðshlutdeild hérlendis þó ekki sé hægt að taka þessum tölum sem heilögum sannleik.


