
Stór dagur í dag. Loksins er iPad orðinn að fullorðinni manneskju. iOS 4.2 gerir öllum iOS tækjum frá Apple kleift að tala sama tungumálið í fyrsta skipti. iPad hefur verið fastur í iOS 3.x síðan hann kom fyrst út en nú eru allir jafnir í iOS vinahópnum.
Apple leggur mikla áherslu á að uppfært sé í þessa útgáfu af iOS enda bætast við mjög margir skemmtilegir möguleikar.
- AirPrint – Prentaðu þráðlaust úr iPod Touch, iPad eða iPhone. Við erum búin að prófa þetta og það er klárt að við munum nota þennan fítus margoft.
- Find My iPhone – Þetta var þjónusta sem var áður hluti af MobileMe pakkanum sem kostar 99$. Nú er þetta orðið frítt og því hægt að finna stolinn/týndan iPhone hvar sem er. Eða fylgjast með makanum…… hmm….
- Nýir SMS tónar - Frá útgáfu fyrstu kynslóð iPhone hefur fólk nöldrað yfir skorti á nýjum SMS tónum. Nöldrið verður að hætta núna.
- Leigja myndir og þætti á 0,99$ - Hver kannast ekki við að sitja á flugvelli og hugsa, “djö.. ég hefði átt að setja einhverja mynd eða þátt á símann minn fyrir flugið”. Nú er það ekkert stress. Leigðu þér þátt á 0,99$ fyrir flugið heim.
Fyrir iPad er þetta risastór uppfærsla sem færir hann inn í nútímann og innifelur auðvitað allt sem iPhone og iPod Touch hafa haft síðan 4.0 uppfærslan kom í sumar.
Þeir sem eru með ólæsta síma geta sett iOS 4.2 upp strax og notið alls sem uppfærslan hefur upp á að bjóða. Þeir sem eru með læsta síma þurfa að bíða aðeins lengur, en vonast er til að jailbreak og unlock verði komið á síðu iPhone Dev Team á morgun.
Hægt er að setja iOS 4.2 inn á þessi tæki
iPhone 3G
iPhone 3GS
iPhone 4
iPod Touch 2nd. gen
iPod Touch 3rd. gen
iPod Touch 4th. gen
iPad
Apple TV nýja
ath. að sum tæki styðja ekki alla fítusana í 4.2
Ella Frímanns var í skýjunum yfir nýju græjunni sinni eins og sjá má ![]()

Hún vann sér inn 32GB iPod Touch af nýjustu gerð ásamt 100$ inneign í iTunes Store. Ekki slæm blanda þar á ferð.
Við hjá Macland óskum henni innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt í leiknum.
Fleiri myndir af öðrum vinningshöfum munu birtast á næstu dögum.
Að lokum viljum við þakka Eplakort.is fyrir að útvega okkur iTunes kortin en við getum hiklaust mælt með þeirra þjónustu, enda nýtum við okkur hana sjálf.

Apple kynnti iTunes 10 í gær en einhverjir örðugleikar voru á því að koma iTunes í loftið. Nú í morgun var þetta komið á heimasíðu Apple og líst okkur bara vel á enn sem komið er.
Við eigum þó eftir að skoða þetta betur og munum þá skrifa nánar um uppfærsluna.
Þið getið sótt iTunes 10 með því að smella á myndina hér að neðan
Já… þú last það rétt. Frá árinu 2003 hefur Apple selt 10 milljarði laga. iTunes búðin hefur náð alveg ótrúlegum árangri þrátt fyrir mikla bölsýni og mótbárur stóru bandarísku útgáfurisanna í byrjun. Það má segja að Apple hafi tekist áætlunarverk sitt, en frá útgáfu fyrsta iPod sagðist Apple ætla að umbylta tónlistarheiminum. 10 milljarðir laga sanna að sú áætlun hefur gengið upp og rúmlega það.
Apple hefur ekki sýnt áhuga á að opna iTunes búð á Íslandi og með tilkomu iPod Touch og iPhone hefur notkun iTunes store aukist margfalt enda eru þetta tvær vinsælustu græjurnar í sínum flokki. Hérlendis eru mörg þúsund iPhone í notkun, þrátt fyrir að hann hafi ekki komið í sölu fyrr en seint á síðasta ári hjá íslenskum símfyrirtækjum.
Fyrir nokkrum árum opnaðist óvart leið hjá Apple til sem gerði Apple notendum sem búa ekki í USA kleift að notfæra sér þjónustu iTunes store og þá mátti sjá notkun hérlendis aukast en þó var sú aukning óveruleg sökum þess að þessi leið var nokkuð flókin í uppsetningu. Annað er uppi á teningnum í dag sérstaklega með tilkomu iPhone. Apple hefur selt iPhone ólæstan í nokkrum löndum og því þurftu þeir að bregðast við því að fólk frá löndum sem ekki hefur iTunes store gæti komist í búðina án krókaleiða. Nú er svo komið að þú ert ekki meira en 5 mínútur að komast inn í búðina og nota hana á fullkomlega löglegan hátt.
Eplakort.com hófu sölu á iTunes kortum í febrúar 2010 og hefur salan hjá þeim gengið framar vonum. Líklegast ástæðan fyrir því er skortur á aðgengi að erlendri tónlist í rafrænu formi hérlendis. Tónlist.is hefur sinnt íslenska hlutanum nokkuð vel og eiga þeir hrós skilið fyrir það, en á sama tíma má minnast á að orðrómur hefur gengið um internetið í töluverðan tíma að Tónlist.is sé stærsta ástæða þess að Apple sé ekki komið með iTunes búð hér á landi. Einnig hlýtur íslenska krónan og smæð markaðarins að spila inn í, því má ekki gleyma.
Eplakort.com bjóða upp á 15$ kort í dag ásamt pakka með fjórum 15$ kortum en mér skilst að stefnan sé sett á 50$ kort innan skamms. Frábært framtak hjá þeim strákum og óskum við þeim til hamingju með glæsilega síðu og bíðum við spennt eftir að sjá hvernig gengur hjá þeim. Nánari umfjöllun um Eplakort.com mun birtast á Macland.is innan skamms.
10 milljarðir laga er ótrúlegt afrek á svona skömmum tíma og sýnir að neytendur eru hættir að láta segja sér hvar og hvenær þeir vilja kaupa tónlist/kvikmyndir/sjónvarpsþætti/forrit og með tilkomu iPad nú í vor mun iTunes búðin bara blómstra enn meir.


