Hæ, og já sælir!

Nú getum við loksins kynnt til leiks spjallborðið okkar sem ætti að gleðja og kæta Maclendinga nær og fjær.

Tvær leiðir eru til að skrá sig á spjallborðið.

1. Nota Facebook aðgang (mælum með þessu enda gríðarlega einfalt og fljótlegt)
2. Skrá sig beint á spjallið óháð Facebook

Flestir flokkar eru komnir inn en við munum líklega breyta þeim eitthvað og bæta á næstunni ásamt því að íslenska a.m.k. hluta af spjallborðinu.

Allar ábendingar eru gríðarlega vel þegnar og við hlökkum til að sjá og heyra frá ykkur.



Vinir okkar hjá Sport.is hafa tekið saman góða umfjöllun um Pocket Penguin veskið/hulstrið sem við seljum. Sigrún Baldursdóttir, fatahönnuður, hefur selt Pocket Penguin í ýmsum sérverslunum undanfarin ár og við erum stolt af því að selja þessa frábæru vöru.

Pocket Penguin kostar aðeins 6.990 og er úr ekta leðri og handsaumað af Sigrúnu.



Auðvitað miðað við höfðatölu þó :) Sviss er í fyrsta sæti með Lúxemborg og Bandaríkin í öðru og þriðja sæti. Ísland er svo í fjórða sæti með rétt yfir 15% af markaðnum sem notar makka.

Þessar tölur eru fengnar frá Pingdom, fyrirtæki sem sérhæfir sig í eftirliti með uppitíma á netþjónum. Pingdom notar tölfræði sem fyrirtækið safnar úr heimsóknartölum frá meira en 3 milljón heimasíðum um allan heim.

Virkilega gaman að sjá loksins einhverjar tölur um markaðshlutdeild hérlendis þó ekki sé hægt að taka þessum tölum sem heilögum sannleik.

Mynd fengin frá 9to5mac.com