Mikið rosalega væri fallegt af Apple að ráða þennan mann í vinnu hjá sér. Rétt upp hönd sem er kominn með ógeð á notifications / tilkynningum í iPhone, iPad eða iPod Touch. Hver kannast ekki við að fá 3 SMS, 2 missed call og fullt af Facebook tilkynningum.

Þetta kannast örugglega margir við…. hvernig á maður að muna hvað var á þessum skjá þegar maður “aflæsir” tækinu sem maður að nota. Allar tilkynningar hverfa og næsta skref er að reyna að muna hvað var nú aftur á skjánum.

Þessi gaur er greinilega búinn að fá nóg og biðlar til Apple um að gera þetta almennilega í iOS 5 sem er væntanlegt í sumar.



Eigum allar stærðir af 3G svörtum. Erum einnig með 64GB 3G svartan og svo 32GB WiFi svartan.

Opið til 16 í dag og við erum við síma 580-7500 eða verslun@macland.is

 



Fengum dágóðan slatta í dag og eigum til nokkrar týpur á lager.
Eigum líka smart covers í góðu úrvali.

Opnum kl. 10 í fyrramálið og verðum við símann, 580-7500 og netfangið, verslun@macland.is



Nú eru MacBook Pro tölvurnar komnar í eðlilegt ferli og forpöntun því lokið. Hægt er að panta þær með því að hafa samband við okkur á verslun@macland.is, hringja í 580-7500 eða hreinlega kíkja á okkur á Klapparstíg 30.

Forpöntun á iPad 2 er einnig lokið, en hann kemur til landsins núna á föstudaginn og verður til sýnis hjá okkur vonandi frá því kl. 10 sama dag.

Forpantanir á iPad verða afgreiddar í þeirri röð sem þær bárust og ekki er vitað hversu mikið magn kemur til landsins á föstudaginn eða hversu mikill tími líður þar til næsta sending kemur.

Við munum að sjálfsögðu láta ykkur vita þegar við fáum einhverjar upplýsingar.




Jú að sjálfsögðu verður Macland með iPad 2 til sölu strax og hann berst til landsins. Þú getur forpantað þér eintak strax í dag hér á vefnum okkar.

Steve Jobs mætti á sviðið í dag og kynnti iPad 2 til leiks. Það sem helst aðgreinir upprunalega iPad og iPad 2 er :

Continue reading »