Mikið rosalega væri fallegt af Apple að ráða þennan mann í vinnu hjá sér. Rétt upp hönd sem er kominn með ógeð á notifications / tilkynningum í iPhone, iPad eða iPod Touch. Hver kannast ekki við að fá 3 SMS, 2 missed call og fullt af Facebook tilkynningum.

Þetta kannast örugglega margir við…. hvernig á maður að muna hvað var á þessum skjá þegar maður “aflæsir” tækinu sem maður að nota. Allar tilkynningar hverfa og næsta skref er að reyna að muna hvað var nú aftur á skjánum.

Þessi gaur er greinilega búinn að fá nóg og biðlar til Apple um að gera þetta almennilega í iOS 5 sem er væntanlegt í sumar.




Jú að sjálfsögðu verður Macland með iPad 2 til sölu strax og hann berst til landsins. Þú getur forpantað þér eintak strax í dag hér á vefnum okkar.

Steve Jobs mætti á sviðið í dag og kynnti iPad 2 til leiks. Það sem helst aðgreinir upprunalega iPad og iPad 2 er :

Continue reading »



Hæ iPad. Komdu fagnandi, þú ert ekki lengur “ólöglegur innflytjandi” :)

Í dag, 28.janúar 2011 er hægt að fá allar útgáfur af iPad hjá Macland. Kíktu við og skoðaðu eitthvað það allra fallegasta og besta sem Apple hefur sent frá sér. Erum á Klapparstíg 30 og verðum í iPad stuði milli 10 og 18. Sjáumst!

Verðlistann okkar má finna hér.

16GB WiFi – 89.990
32GB WiFi – 109.990
64GB WiFi – 126.990

16GB WiFi + 3G – 114.990
32GB WiFi + 3G – 129.990
64GB WiFi + 3G – 149.990

iPad, vertu velkominn í Macland

Steve Jobs vill að ÞÚ kíkir í Macland og verðir ástfanginn af iPad.



Páfagaukarnir hjá Parrott munu gefa út þessa græju á árinu. Við getum ekki annað sagt en vá. Ljóst er að þetta verður að kaupa í bílinn um leið og það kemur út. Græjan virkar bæði fyrir iPhone og Android síma sem er frábært í alla staði. Engar snúrur eru þarfar enda notar Parrott BlueTooth tækni til að eiga samskipti við símann. Kíkið á síðuna hjá Parrott og kynnið ykkur þessa skemmtilegu græju betur.

Parrot bílgræja





Mikið rosalega eru þetta flottirfítusar. Get ekki beðið að setja þetta upp á iPad-inn minn. Nú getur þú loksins hætt að misnota þennan takka þegar þú vilt loka forriti eða skipta á milli forrita.. júhúúú

Svo er vert að minnast á hina flottu möguleikana sem koma í iOS 4.3

-iOS 4.3 beta 1 er fyrir öll nýleg OS tæki og Apple TV
-iOS 4.3 kemur með nýja Multi-Touch möguleika í iPad
-iOS 4.3 styður hvorki iPhone 3G né iPod Touch 2G sem eru þá fastir í 4.2.1
-iPhone (ekki sá frá Verizon) mun fá “Personal hotspot” fítusinn sem þýðir að þú getur búið til þitt eigið þráðlausa net með símanum (fyrir allt að 5 tæki)
-FaceTime fær nýtt icon og iAds geta nú birst yfir allan skjáinn
-iOS 4.3 leyfir notendum iPad að velja hvort “lásatakkinn” virki sem silent takki eða lásatakki.
-iOS 4.3 kemur líklega með skemmtilegum vídjó effectum fyrir iPhone/iPod Touch í myndavélaforritinu.
-iOS 4.3 býður upp á nýjar stillingar fyrir hvernig skilaboðahluti stýrikerfisins virkar ásamt nýrri leturgerð í Notes forritinu

Flott uppfærsla sem er já, væntanleg í mars.

Snillingarnir hjá Engadget eru að sjálfsögðu búnir að setja inn myndband af þessu.