Þann 6.júní næstkomandi kl. 10:00 að staðartíma í Kaliforníu mun Steve Jobs kynna iOS5, Lion (OSX10.7) og iCloud. Kynningin verður ekki í beinni útsendingu sem fyrr en verður væntanlega komin á vef Apple fyrir þyrsta Apple lúða (og alla hina) um kl. 22 sama kvöld.
iOS5 er ekki vitað mikið um enn sem komið er því miður, en mikil tilhlökkun er varðandi hvaða nýjungar koma fram. Helst hefur verið rætt um nýtt tilkynningakerfi (notifications) en kerfið í dag er gjörsamlega óþolandi og virkar mjög illa þegar fleiri en 1 tilkynning kemur á skjáinn. Þetta gerir það að verkum að Missed Call, SMS og Calendar áminning hverfa allar þegar tæki er aflæst. Vonir standa til að þetta verði lagað í iOS5. Að okkar mati er iOS5 ekki að fara að koma í næstu viku. Líklegra er að forritarar fái prufuútgáfu og að iOS5 komi út í haust.
Lion er mikið vitað um enda hefur opinber prufuútgáfa verið í notkun í töluverðan tíma. Stýrikerfið er nú orðið frekar stöðugt og styttist að okkar mati í að lokaútgáfan verði klár. Að okkar mati er líklegt að Lion komi út 6.júní og verði aðgengilegt í gegnum Mac App Store og auðvitað í verslunum um allan heim.
Svo er það iCloud. Lítið er vitað um nákvæmlega hvað verður í iCloud, en líklegt er að iTunes muni verða að svokallaðri “Cloud”þjónustu sem þýðir að notendur geti þá geymt tónlistina og myndböndin sín á netþjónum Apple og spilað hvar sem þeir eru í heiminum svo lengi sem þeir eru í netsambandi. Líklegt má einnig telja að Apple komi með “DropBox killer” sem væri þá settur til höfuðs DropBox sem nýtur gríðarlegra vinsælda hjá tölvunotendum.
Það er því ljóst að 6.júní er dagur sem allir vilja sitja límdir við tölvuskjáinn.
Við verðum á vaktinni og látum ykkur vita um leið og eitthvað nýtt er að frétta.
Hér er fréttatilkynningin frá Apple í heild sinni.
Apple® CEO Steve Jobs and a team of Apple executives will kick off the company’s annual Worldwide Developers Conference (WWDC) with a keynote address on Monday, June 6 at 10:00 a.m. At the keynote, Apple will unveil its next generation software – Lion, the eighth major release of Mac OS® X; iOS 5, the next version of Apple’s advanced mobile operating system which powers the iPad®, iPhone® and iPod touch®; and iCloud®, Apple’s upcoming cloud services offering.Mikið rosalega væri fallegt af Apple að ráða þennan mann í vinnu hjá sér. Rétt upp hönd sem er kominn með ógeð á notifications / tilkynningum í iPhone, iPad eða iPod Touch. Hver kannast ekki við að fá 3 SMS, 2 missed call og fullt af Facebook tilkynningum.
Þetta kannast örugglega margir við…. hvernig á maður að muna hvað var á þessum skjá þegar maður “aflæsir” tækinu sem maður að nota. Allar tilkynningar hverfa og næsta skref er að reyna að muna hvað var nú aftur á skjánum.

Þessi gaur er greinilega búinn að fá nóg og biðlar til Apple um að gera þetta almennilega í iOS 5 sem er væntanlegt í sumar.

