Við erum alltaf að leita að skemmtilegum lausnum á pirrandi vandamálum, sem getur verið mjög frústrerandi til lengdar. Nýverið heyrðum við af forriti sem heitir Fantastical. Það er ekki auðvelt að búa til dagatalsforrit fyrir Mac Os þar sem iCal fylgir frítt með öllum Apple tölvum. Apple hefur hins vegar gleymt að hugsa um þá sem nota makka hvað varðar notagildi og þægilegheit því iOS forritin eru mun þægilegri í alla staði. Mun auðveldara er að nota iOS tæki til að setja inn nýja fundi og svo frv. í “iCal” í viðkomandi iOS tæki. Í Mac Os þarftu að ræsa iCal, velja daginn sem þú vilt búa til áminninguna/fundinn og fylla út í alla viðeigandi reiti fyrir viðkomandi áminningu/fund. Nafn, staðsetning, “allur dagurinn” eða ekki, dagsetning, lengd viðburðar, á að endurtaka fundinn á föstum tíma, viltu bjóða einhverjum á fundinn og svo staða viðburðar.
Svona innsláttur og músasmellir er ekki eitthvað sem við þekkjum Apple fyrir og verður þetta leiðigjarnt og pirrandi með tímanum. Þetta er nákvæmlega það sem Flexbits vill laga með Fantastical. Einn smávægilegur galli er að forritið reiknar með enska tungumálinu þegar viðburður er skráður í Fantastical en þetta er ekki e-ð sem dregur úr notagildi forritsins að okkar mati.
Uppsetning gengur mjög hratt fyrir sig og þegar henni er lokið geturðu á einfaldan hátt virkjað Fantastical með lyklaborðsflýtiaðgerð eða með því að smella á “icon” í valstikunni efst á skjánum og þú ert strax farinn að skrá inn viðburð í iCal. Fantastical virkar með öllum þeim stöðlum sem iCal styður t.d. CalDav og ekkert mál er að vinna með fleiri en eitt dagatal.
Forritið er virkilega skemmtilegt og létt í keyrslu en gríðarlega kröftugt. T.d. setningin “Fundur með Sigga tomorrow at Macland, 17:00 to 18:00″ býr til viðburð kl. 17 til 18 á morgun í sjálfvalda dagatalinu sem ég nota.
Fantastical fyllir inn í Name með “Fundur með Sigga”, Date með “tomorrow” og Tími “from 17:00 to 18:00″. Skilningur Fantastical á tungumálinu er svo góður að sveigjanleikinn er þó nokkur við innslátt á viðburðum. En af hverju skiptir þetta máli? Jú þetta sparar tíma og léttir manni töluvert þá vinnu sem er fólgin í því að slá inn viðburði í iCal. Undirritaður þolir t.d. ekki að smella á alla reitina í iCal og fylla þá út. Þetta breytir því frá a til ö. Snilldin við Fantastical er ekki bara tengd þessum sparnaði á innstætti heldur t.d. sækir forritið netfangið hjá Sigga (siggi@macland.is) og býður mér að senda honum fundarboð. Svona litlir og sniðugir hlutir gleðja minimalistíska nörda eins og mig.
Í raun kemst Fantastical mjög nálægt því að vera “aðstoðarmaður” minn í dagatalsmálum og stendur sig bara fjandi vel í því.
Fantastical er eitthvað sem við getum hiklaust mælt með og hægt er að nálgast það í gegnum Mac App Store á aðeins 14,99$ sem er kynningarverð. Einnig er hægt að sækja ókeypis prufu hér.
Mikið rosalega væri fallegt af Apple að ráða þennan mann í vinnu hjá sér. Rétt upp hönd sem er kominn með ógeð á notifications / tilkynningum í iPhone, iPad eða iPod Touch. Hver kannast ekki við að fá 3 SMS, 2 missed call og fullt af Facebook tilkynningum.
Þetta kannast örugglega margir við…. hvernig á maður að muna hvað var á þessum skjá þegar maður “aflæsir” tækinu sem maður að nota. Allar tilkynningar hverfa og næsta skref er að reyna að muna hvað var nú aftur á skjánum.

Þessi gaur er greinilega búinn að fá nóg og biðlar til Apple um að gera þetta almennilega í iOS 5 sem er væntanlegt í sumar.

Stór dagur í dag. Loksins er iPad orðinn að fullorðinni manneskju. iOS 4.2 gerir öllum iOS tækjum frá Apple kleift að tala sama tungumálið í fyrsta skipti. iPad hefur verið fastur í iOS 3.x síðan hann kom fyrst út en nú eru allir jafnir í iOS vinahópnum.
Apple leggur mikla áherslu á að uppfært sé í þessa útgáfu af iOS enda bætast við mjög margir skemmtilegir möguleikar.
- AirPrint – Prentaðu þráðlaust úr iPod Touch, iPad eða iPhone. Við erum búin að prófa þetta og það er klárt að við munum nota þennan fítus margoft.
- Find My iPhone – Þetta var þjónusta sem var áður hluti af MobileMe pakkanum sem kostar 99$. Nú er þetta orðið frítt og því hægt að finna stolinn/týndan iPhone hvar sem er. Eða fylgjast með makanum…… hmm….
- Nýir SMS tónar - Frá útgáfu fyrstu kynslóð iPhone hefur fólk nöldrað yfir skorti á nýjum SMS tónum. Nöldrið verður að hætta núna.
- Leigja myndir og þætti á 0,99$ - Hver kannast ekki við að sitja á flugvelli og hugsa, “djö.. ég hefði átt að setja einhverja mynd eða þátt á símann minn fyrir flugið”. Nú er það ekkert stress. Leigðu þér þátt á 0,99$ fyrir flugið heim.
Fyrir iPad er þetta risastór uppfærsla sem færir hann inn í nútímann og innifelur auðvitað allt sem iPhone og iPod Touch hafa haft síðan 4.0 uppfærslan kom í sumar.
Þeir sem eru með ólæsta síma geta sett iOS 4.2 upp strax og notið alls sem uppfærslan hefur upp á að bjóða. Þeir sem eru með læsta síma þurfa að bíða aðeins lengur, en vonast er til að jailbreak og unlock verði komið á síðu iPhone Dev Team á morgun.
Hægt er að setja iOS 4.2 inn á þessi tæki
iPhone 3G
iPhone 3GS
iPhone 4
iPod Touch 2nd. gen
iPod Touch 3rd. gen
iPod Touch 4th. gen
iPad
Apple TV nýja
ath. að sum tæki styðja ekki alla fítusana í 4.2
Apple hafa verið duglegir í vinnunni undanfarið því í dag sýndu þeir okkur smá forsmekk af því hvernig næsta stýrikerfi mun líta út. Í stuttu máli þá misstum við kjálkann í gólfið. Þetta verður rosalegt.


